Hoppa yfir valmynd

Frétt

10. september 2007 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Vistvæn hönnun til sýnis

Aðalsteinn Ingólfsson, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands og Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra.
Í sal Hönnunarsafns Íslands

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra opnaði um helgina sýningu Hönnunarsafns Íslands á vistvænni hönnun. Sýningin nefnist Framhaldslíf hlutanna og fer fram í sal Hönnunarsafnsins að Garðatorgi 9 í Garðabæ. Hún stendur til 30. september og er opin frá klukkan 14:00 til 18:00 alla daga nema mánudaga.

Boðskapur sýningarinnar er sá að varla sé lengur hægt að ræða fagurfræði og nytsemi hönnunar án þess að taka tillit til þeirra áhrifa sem hún hefur á umhverfi sitt. Kappkostað var að velja til sýningarinnar vel hannaða og útbreidda nytjahluti, bæði úr fórum safnsins og frá erlendum framleiðendum. Auk þess eru á sýningunni nokkrar prótótýpur hugvitsamlegra nytjahluta sem ekki hafa enn ratað í framleiðslu.

Við val á nytjahlutum á sýninguna voru eftirfarandi hugmyndir m.a. hafðar að leiðarljósi:

a) Framleiðsla þeirra hafi ekki í för með sér mengun eða sóun á fágætum efniviði eða auðlind, þ.á.m. rými og andrúmslofti.
b) Efniviður þeirra hafi orðið til í endurvinnsluferli af einhverju tagi, eða þá að notaðir eru lítt breyttir innviðir eldri nytjahluta.
c) Hlutirnir sýni fram á hvernig endurvinnsluferlið eykur á virði og notagildi efna.
d) Efnivið hlutanna megi endurnýta að einhverju eða öllu leyti í náinni framtíð.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum