Hoppa yfir valmynd

Frétt

12. september 2007 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Málstofa í tilefni af 20 ára afmæli Montrealbókunarinnar

Umhverfisráðuneytið og Umhverfisstofnun boða til málstofu föstudaginn 14. september í tilefni af 20 ára afmæli Montrealbókunarinnar. Málþingið fer fram á Hótel Loftleiðum og stendur frá kl. 9:00 til 12:00. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

Montrealbókunin um verndun ósonlagsins var undirrituð 16. september 1987 í Montreal í Kanada og hefur þessi dagur verið valinn Dagur ósonlagsins. Montrealbókunin er talin vera árangursríkasti alþjóðasamningur sem gerður hefur verið á sviði umhverfismála og hafa nær öll ríki heims staðfest hana. Umhverfisráðuneytið og Umhverfisstofnun efna því nú til málþingsins til að meta árangur sem af bókuninni hefur hlotist og framtíðarhorfur.

Erindi

  • Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra. Aðgerðir stjórnvalda, stefna, árangur og horfur vegna ósoneyðingar
  • Gunnlaug Einarsdóttir, Umhverfisstofnun. Eyðing ósonlagsins, Vínarsáttmálinn, Montrealbókunin og þróun reglna á Íslandi og í Evrópu
  • Ellen Mooney, húðlæknir. Áhrif eyðingar ósonlagsins á húð fólks
  • Ársæll Arnarsson, augnlæknir. Áhrif eyðingar ósonlagsins á sjón
  • Halldór Björnsson, veðurfræðingur. Tenging milli ósonlags og loftslagsbreytinga
  • Sigrún Guðmundsdóttir, Umhverfisstofnun. Varnir gegn skaðlegri sólgeislun
  • Helgi Guðmundsson, Öryggismiðstöðinni.
  • Jóhannes Kristófersson, Optimar.

Pallborðsumræður

  • Sigurbjörg Sæmundsdóttir, umhverfisráðuneytinu.
  • Jón Hjaltalín Ólafsson, húðlæknir.
  • Bryndís Skúladóttir, Samtökum iðnaðarins.
  • Kjartan Ólafsson, varaformaður umhverfisnefndar Alþingis.
  • Álfheiður Ingadóttir, iðnaðarnefnd Alþingis.
  • Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, Landvernd.

Fundarstjórn: Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum