Hoppa yfir valmynd

Frétt

12. september 2007 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ný verkefnastjórn vegna rammaáætlunar um verndun og nýtingu náttúrusvæða

Össur Skarphéðinsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Svanfríður Jónasdóttir
Í Þjóðmenningarhúsi

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hafa skipað verkefnastjórn sem falið hefur verið að undirbúa rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúrusvæða. Verkefnastjórnin á að ljúka störfum og skila skýrslu til umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra með heildarmati á virkjunarkostum fyrir 1. júlí 2009.

Iðnaðarráðherra mun síðan í samráði við umhverfisráðherra og verkefnisstjórnina leggja fyrir Alþingi fyrir lok ársins 2009 tillögu að rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafls- og jarðvarmasvæði.

Þetta verkefni er mikilvægur hluti af því markmiði ríkisstjórnarinnar að skapa sátt um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Markmið rammaáætlunarinnar er að skapa faglegar forsendur fyrir ákvörðun um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafls- og jarðhitasvæði.

Í rammaáætluninni skal leggja mat á og flokka virkjunarkosti, jafnt vatnsafls og háhita og áhrif þeirra á náttúrufar, náttúru- og menningarminjar, meðal annars með tilliti til orkugetu, hagkvæmni og annars þjóðhagslegs gildis, samhliða því að skilgreina og meta áhrif á hagsmuni allra þeirra sem nýtt geta þessi sömu gæði.

Skipulag rammaáætlunarinnar er þríþætt. Heildarstjórn verkefnisins er í höndum verkefnisstjórnar, en meginhlutverk hennar er að semja tillögu að rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Undir verkefnisstjórn starfa faghópar skipaðir af sérfræðingum á viðeigandi sviðum sem ætlað er að fara yfir virkjunarkosti hver frá sínum sjónarhóli, meta þá með stigagjöf og gera tillögur til verkefnisstjórnar. Fjöldi faghópa og skipan þeirra verður ákveðin af verkefnisstjórninni. Loks verður hagsmuna- og áhugaaðilum boðin þátttaka í sérstökum vettvangi sem ætlaður er til samráðs vegna verkefnisins.

Verkefnisstjórnin skal hafa víðtækt samráð við almenning og alla hagsmunaaðila á starfstíma sínum, m.a. með kynningarfundum og sérstakri vefsíðu með upplýsingum fyrir almenning og hagsmunaaðila.

Formaður verkefnisstjórnarinnar er Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð, skipuð af umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra. Auk hennar sitja í stjórninni:

Elín R. Líndal, oddviti Húnaþings vestra, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Ellý Katrín Guðmundsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, tilnefnd af Umhverfisstofnun.

Eydís Aðalbjörnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Samtökum ferðaþjónustunnar, tilnefnd af Samtökum ferðaþjónustunnar.

Freysteinn Sigurðsson, jarðfræðingur, tilnefndur af náttúruverndarsamtökum.

Hjörleifur B. Kvaran, aðstoðarforstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, tilnefndur af Samorku.

Stefán Arnórsson, prófessor, tilnefndur af iðnaðarráðherra.

Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Rangárþingi eystra, tilnefnd af forsætisráðherra.

Þorkell Helgason, orkumálastjóri, tilnefndur af Orkustofnun.

Þorsteinn Tómasson, skrifstofustjóri, tilnefndur af landbúnaðarráðherra.

Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor, tilnefnd af umhverfisráðherra.

Starfsmenn verkefnisstjórnarinnar verða Hreinn Hrafnkelsson, sérfræðingur í iðnaðarráðuneyti

Ingibjörg Halldórsdóttir, lögfræðingur í umhverfisráðuneyti.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum