Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. október 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Akstursgjald ríkisstarfsmanna - auglýsing nr. 4/2007

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald

  1. Fyrstu 10.000 km - kr. 71,50 pr. km
  2. Frá 10.000 til 20.000 km - kr. 64,50 pr. km
  3. Umfram 20.000 km - 57,00 pr. km

Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og  með 1. október 2007. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2007 dagsett 23. maí 2007.

Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar á vefsíðu fjármálaráðuneytisins. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga.

Veffangið er www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html


Reykjavík, 28. september 2007
Ferðakostnaðarnefnd



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum