Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. október 2007 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Dagur barnsins árlega haldinn hátíðlegur á Íslandi

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu félagsmálaráðherra um að sérstakur dagur verði helgaður börnum hér á landi. Lagt er til að dagur barnsins verði síðasti sunnudagur í maí ár hvert, í fyrsta sinn árið 2008. Beri daginn upp á hvítasunnudag skal dagur barnsins vera næsti sunnudagur á undan hvítasunnudegi. Þessi tími er meðal annars  talinn æskilegur þar sem framundan eru skólalok og upphaf sumarfría. Víða um heim hefur dagur barnsins verið haldinn hátíðlegur 1. júní ár hvert, fyrst árið 1925. Þá hafa Sameinuðu þjóðirnar frá árinu 1954 helgað 20. nóvember alþjóðlegum degi barna, „Universal Children's Day“.

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra segir að full ástæða sé talin til að sérstakur dagur verði framvegis helgaður börnum á Íslandi. Það undirstriki enn frekar áherslur í stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að málefni yngstu kynslóðarinnar séu forgangsmál sem endurspeglist nú þegar í nýsamþykktri aðgerðaáætlun í þágu barna og ungmenna.

„Ég tel mikilvægt er að tryggja að dagur barnsins hvetji til samveru foreldra með börnum sínum og endurspegli áherslur á fjölskylduvænt samfélag og jafnvægi á milli vinnu og fjölskyldulífs. Ég hef lagt til að stjórnvöld velji á hverju ári tiltekið efni sem tengist börnum sem lögð yrði áhersla á á degi barnsins. Ég vil að umfjöllunin hverju sinni taki mið af mismunandi aðstæðum sem börn búa því miður við í samfélagi okkar.“

Félagsmálaráðuneytið mun nú hefja frekari undirbúning fyrir formlega skráningu dags barnsins á Íslandi í Almanak Háskóla Íslands þannig að dagur barnsins verði fyrst haldinn hátíðlegur á Íslandi sunnudaginn 25. maí árið 2008. Samráðshópur um aðgerðaáætlun í þágu barna og ungmenna mun árlega gera tillögu til félagsmálaráðherra um áherslur á degi barnsins hvert ár og hópurinn mun jafnframt gera tillögu til ráðherra um veitingu árlegra viðurkenninga til þeirra sem hafa unnið í þágu barna hér á landi eða skarað hafa fram úr á einhvern hátt.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum