Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. október 2007 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Menntaskólanum í Kópavogi veitt viðurkenning Jafnréttisráðs árið 2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra afhenti í dag viðurkenningu Jafnréttisráðs á Hilton Reykjavik Nordica.

Jóhanna Sigurðardóttir og Margrét FriðriksdóttirJafnréttisráð ákvað að veita Menntaskólanum í Kópavogi viðurkenningu ráðsins árið 2007 en þetta var í sextánda skiptið sem viðurkenningin er veitt.

Menntaskólinn í Kópavogi hefur skýra og virka jafnréttisstefnu gagnvart bæði nemendum og starfsfólki skólans. Markmið jafnréttisáætlunar skólans er að stuðla að jafnri stöðu kvenna og karla innan skólans og jöfnum tækifærum einstaklinga á sem flestum sviðum, óháð kynferði. Þetta á meðal annars við um rétt til starfa, aðstöðu, menntunar og launa fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf. Enn fremur eru hlutföll kynjanna jöfn á flestum sviðum skólans, hvort sem það er í hópi stjórnenda, annars starfsfólks eða meðal nemenda.

Menntaskólinn hefur tekið þátt í samevrópsku verkefni þar sem leitast er við að gera nemendur meðvitaða um kyn og kynímyndir, hvernig þær mótast og þeim viðhaldið. Þá hefur skólinn staðið fyrir sérstakri jafnréttisviku í mars síðastliðnum þar sem að kennslan hafði jafnrétti kynjanna að inntaki með einum eða öðrum hætti auk metnaðarfullrar dagskrár þar sem fjallað var um jafnrétti kynjanna frá ýmsum sjónarhornum.

Jafnréttisráð telur að Menntaskólinn í Kópavogi sýni gott starf á sviði jafnréttismála og vill með viðurkenningunni hvetja aðra skóla til líkrar starfsemi.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum