Hoppa yfir valmynd

Frétt

6. nóvember 2007 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Fallist á að virkjun í Hverfisfljóti sæti mati á umhverfisáhrifum

Umhverfisráðuneytið hefur hnekkt ákvörðun Skipulagsstofnunar um að fyrirhuguð virkjun í Hverfisfljóti skuli ekki sæta mati á umhverfisáhrifum. Telur ráðuneytið að umhverfisáhrif framkvæmdanna geti orðið umtalsvert og því verði ekki komist hjá því að fallast á kröfu kærenda um að framkvæmdin sæti mati á umhverfisáhrifum.

Fyrirhuguð framkvæmd við virkjun Hverfisfljóts samanstendur einkum af gerð nýs 6-8 km vegslóða á svæðinu, niðurgrafinnar 900-1.400 metra langrar þrýstipípu, 100-150 fermetra stöðvarhúss, yfirfallskants, aðrennslisskurðar, frárennslisskurðar og um 15.000 rúmmetra efnistöku úr Hverfisfljóti til vegslóðagerðar vegna framkvæmdarinnar. Með nýrri vegslóð að virkjanasvæðinu verður farið yfir Skaftáreldahraun á um 7 km kafla, þar af um 2 km um úfið hraun, er nýtur verndar samkvæmt lögum um náttúruvernd.

Ráðneytið sendi kærurnar til umsagnar Umhverfisstofnunar, sveitarstjórnar Skaftárhrepps og Skipulagsstofnunar svo og framkvæmdaraðila. Umhverfisráðherra og starfsmenn umhverfisráðuneytisins þekktust einnig boð framkvæmdaraðila um vettvangsgöngu um fyrirhugað virkjunarsvæði.

Í niðurstöðu ráðuneytisins segir m.a. að það taki undir þá afstöðu Umhverfisstofnunar að hraunið sé merkilegt á heimsvísu. Því þyki rök hníga að því að hagsmunaaðilum og almenningi gefist tækifæri til þess að gera athugasemdir og koma með ábendingar varðandi hina fyrirhuguðu framkvæmd í því lögbundna samráðsferli sem felst í mati á umhverfisáhrifum. Þá er það niðurstaða ráðuneytisins að áhrif virkjunarinnar á Lambhagafossa geti orðið umtalsverð og að sjónræn áhrif vegna framkvæmdanna geti orðið varanleg og óafturkræf á landsvæðinu.

Þá segir að þrátt fyrir fyrirhugaðar mótvægisaðgerðir þyki þó ljóst að umhverfisáhrif framkvæmdanna geti orðið umtalsverð. Því verði ekki hjá því komist að fella hina kærðu ákvörðun Skipulagsstofnunar úr gildi og taka til greina kröfu kærenda um að hin fyrirhugaða framkvæmd skuli sæta mati á umhverfisáhrifum.

Hér má nálgast úrskurð ráðuneytisins í heild sinni. (pdf-skjal)



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum