Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. desember 2007 Innviðaráðuneytið

Hvað er spunnið í opinbera vefi 2007?

Forsætisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa látið gera úttekt á vefjum 280 stofnana ríkis og sveitarfélaga. Fyrirtækið Sjá ehf framkvæmdi úttektina. Skýrslutæknifélagið boðar til hádegisverðarfundar á Grand Hótel þann 13. desember 2007, frá kl. 12:00 - 14:00 þar sem kynntar verða niðurstöður úttektarinnar. Fundurinn ber yfirskriftina "Hvað er spunnið í opinbera vefi 2007?"

Markmiðið með úttektinni er að fá heildstætt yfirlit yfir þá þjónustu sem er í boði á vefjum ríkis og sveitarfélaga, en einnig að auka vitund opinberra aðila um það hvar þeir standa í samanburði við aðra og gefa betri hugmynd um möguleika og tækifæri sem felast í rafrænni þjónustu. Skoðaðir voru 262 vefir ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga, að meðtöldum sérstökum þjónustuvefjum sem nokkrar stofnanir hafa komið sér upp. Vefirnir voru metnir meðal annars með tilliti til þjónustu, innihalds, nytsemi og aðgengis.

Einnig voru skoðaðir möguleikar almennings til að fylgjast með og tjá sig um málefni stofnananna. Sams konar úttekt var gerð árið 2005 og verður sérlega áhugavert að skoða hvaða breytingar hafa orðið á þeim tveimur árum sem eru liðin.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum