Hoppa yfir valmynd

Frétt

20. desember 2007 Dómsmálaráðuneytið

Skipun dómara við héraðsdóm

Árni M. Mathiesen, settur dómsmálaráðherra, hefur í dag skipað Þorstein Davíðsson, aðstoðarsaksóknara og deildarstjóra við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, héraðsdómara frá og með 1. janúar 2008.

Árni M. Mathiesen, settur dómsmálaráðherra, hefur í dag skipað Þorstein Davíðsson, aðstoðarsaksóknara og deildarstjóra við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, héraðsdómara frá og með 1. janúar 2008. Hann mun verða með 75% starfsskyldur við héraðsdóm Norðurlands eystra og 25% við héraðsdóm Austurlands og hafa starfsstöð við héraðsdóm Norðurlands eystra.

Aðrir umsækjendur um embættið voru:

Guðmundur Kristjánsson, hæstaréttarlögmaður

Halldór Björnsson, aðstoðarmaður hæstaréttardómara

Pétur Dam Leifsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands og félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri

Ragnheiður Jónsdóttir, löglærður fulltrúi sýslumannsins á Húsavík.

Reykjavík 20. desember 2007.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum