Hoppa yfir valmynd

Frétt

3. janúar 2008 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Breytingar á verkefnum umhverfisráðuneytisins

Umhverfisráðuneytið
Umhverfisráðuneytið

Nú um áramótin fluttust Skógrækt ríkisins, Landgræðsla ríkisins og Vatnamælingar Orkustofnunar til umhverfisráðuneytins í samræmi við breytingar sem gerðar voru á verkefnaskiptingu innan stjórnarráðsins með breytingu á lögum frá Alþingi skömmu fyrir jól. Frá sama tíma fluttist matvælasvið Umhverfisstofnunar til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.

Með þessum breytingum verður umtalsverð aukning á umsvifum umhverfisráðuneytisins. Þannig fjölgar stofnunum ráðuneytisins um þrjár. Stofnanir ráðuneytisins voru níu en verða tólf þangað til um næstu áramót þegar Veðurstofa Íslands og Vatnamælingar Orkustofnunar sameinast í eina stofnun. Við þessar breytingar fjölgar starfsmönnum á vegum ráðuneytisins úr um 300 í 470 og fjárhagsleg umsvif aukast um 20%.

Skógrækt ríkisins er þekkingar-, þróunar- og þjónustuaðili sem vinnur með og fyrir stjórnvöld, almenning og aðra hagsmunaaðila að rannsóknum, þróun, ráðgjöf og þekkingarmiðlun á sviði skógræktar. Fræðast má nánar um stofnunina á heimasíða hennar.

Landgræðsla ríkisins vinnur að stöðvun jarðvegs- og gróðureyðingar, endurheimt landkosta, gróðureftirliti og gróðurvernd. Ennfremur að fræðslu, leiðbeiningum, rannsóknum og þróunarstarfi á þessu sviði. Fræðast má nánar um stofnunina á heimasíða hennar.

Vatnamælingar munu starfa áfram fyrst um sinn sem deild innan Orkustofnunar eða þar til ný stofnun tekur yfir starfsemi Vatnamælinga og Veðurstofu Íslands. Er þegar hafinn undirbúningur að myndun hinnar nýju stofnunar í umhverfisráðuneytinu Er að því stefnt að stofnunin taki til starfa eigi síðar en 1. janúar 2009. Orkustofnun mun þannig heyra undir tvö ráðuneyti þar til ný stofnun tekur til starfa þ.e. iðnaðarráðuneyti og umhverfisráðuneyti eftir því hvaða málefni stofnunarinnar eiga í hlut.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum