Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. janúar 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Skipun samstarfsnefndar um málefni aldraðra

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað í samstarfsnefnd um málefni aldraðra í kjölfar flutnings málefna aldraðra frá heilbrigðisráðuneytinu til félags- og tryggingamálaráðuneytisins um áramótin. Formaður nefndarinnar er Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður.

Samstarfsnefnd um málefni aldraðra starfar á grundvelli laga um málefni aldraðra nr. 125/1999. Samkvæmt lögum skal ráðherra skipa fimm manna samstarfsnefnd um málefni aldraðra eftir hverjar almennar alþingiskosningar. Áður var nefndin skipuð af heilbrigðisráðherra en skal nú skipuð af félags- og tryggingamálaráðherra. Ráðherra skipar formann nefndarinnar en aðrir nefndarmenn eru skipaðir samkvæmt tilnefningum og er einn tilnefndur af heilbrigðisráðherra, einn af Landssambandi eldri borgara, einn af Öldrunarráði Íslands og einn af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Verkefni samstarfsnefndar um málefni aldraðra eru:

  • Að vera félags- og tryggingamálaráðherra og ríkisstjórn til ráðuneytis um málefni aldraðra
  • Að vera tengiliður milli ráðuneyta, stofnana og samtaka sem starfa að málefnum aldraðra.
  • Að stjórna Framkvæmdasjóði aldraðra og gera tillögur til ráðherra um úthlutun úr sjóðnum.

Samstarfsnefnd um málefni aldraðra er þannig skipuð:

  • Ágúst Ólafur Ágústsson, skipaður án tilnefningar, formaður.
    Til vara: Ragnhildur Eggertsdóttir.
  • Ásta Möller, Reykjavík, tiln. af heilbrigðisráðherra.
    Til vara: Dögg Pálsdóttir.
  • Margrét Margeirsdóttir, tiln. af Landssambandi eldri borgara.
    Til vara: Helgi K. Hjálmsson.
  • Guðmundur Rúnar Árnason, tiln. af Sambandi ísl. sveitarfélaga.
    Til vara: Ragnheiður Hergeirsdóttir.
  • Gísli Páll Pálsson, tiln. af Öldrunarráði Íslands.
    Til vara: Bernharður Guðmundsson.

Ritari nefndarinnar er Vilborg Ingólfsdóttir, skrifstofustjóri í félags- og tryggingamálaráðuneytinu.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum