Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. febrúar 2008 Heilbrigðisráðuneytið

Eftirlit Geislavarna ríkisins á að einfalda

Samkvæmt frumvarpi sem heilbrigðisráðherra mælti fyrir í dag er gert ráð fyrir að eftirlit Geislavarna verði einfaldað og að geislun á fólk verði sem minnst. Frumvarpið sem Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, mælti fyrir gerir ráð fyrir að dregið verði úr reglubundnu tæknilegum eftirliti Geislavarna ríkisins, en þess í stað lögð ríkari ábyrg á notendur, virk gæðakerfi og mat á geislaálagi sjúklinga. Sagði ráðherra í framsöguræðu sinni að áherslubreytingin í starfsemi stofnunarinnar ætti að skila verulegum árangri í þeirri viðleitni að notkun geislunar á Íslandi verði sem árangursríkust og að geislun á fólk, almenning, starfsmenn og sjúklinga, sé jafnan sem minnst. Samhliða tillögum að lagabreytingum sagði ráðherra að unnið væri að breytingum á reglugerðum sem Geislavarnir ríkisins starfa eftir með sömu markmið í huga. Breytingarnar sem frumvarpið felur í sér sagði ráðherra fjórþættar:

“Í fyrsta lagi er lögð til einföldun á framkvæmd eftirlits með innflutningi, uppsetningu og breytingum á geislatækjum sem gefa frá sér jónandi geislun. Frumvarpið gerir ráð fyrir að í stað þess að innflytjendur geislavirkra tækja þurfi að senda Geislavörnum ríkisins tilkynningu í hvert tæki sem slíkt tæki er flutt inn verði innflutningur tilkynntur stofnuninni árlega. Þá er í frumvarpinu lagt til að uppsetning geislatækja verði tilkynningaskyld en ekki leyfisskyld eins og og nú er. Þá gerir frumvarpið einnig ráð fyrir að krafa um leyfi vegna breytingar á geislatæki verði felld niður.

Í öðru lagi er lagt til að útflutningur geislavirkra efna verði háður leyfi Geislavarna ríkisins. Leyfi til útflutnings verður því aðeins veitt að stjórnvald í móttökulandinu staðfesti að móttakandi efnisins hafi leyfi til móttöku geislavirkra efna. Gera má ráð fyrir að innflutningur geislavirkra efna verði í auknum mæli háður því að útflutningur þeirra frá móttökulandinu sé háður leyfi og að takmarkanir verði settar á sölu geislavirkra efna til landa sem ekki hafa slík ákvæði í löggjöf sinni. Því er lagt til að kveðið verði á um þetta með skýrum hætti í lögum.

Í þriðja lagi er lagt til að Geislavörnum ríkisins verði falin nauðsynleg mælifræði og umsjón með og varðveisla landsmæligrunna fyrir jónandi geislun og geislavirkni. Með mælifræði jónandi geislunar er átt við fræði og aðferðir til að mæla geislun, geislaskammta og geislavirkni en með landsmæligrunni er átt við mælitæki eða mælikerfi sem ætlað er að skilgreina eða endurgera mælieiningu sem hafa skal til viðmiðunar í viðkomandi landi.

Í fjórða lagi er orðlag nokkurra greina gildandi laga gert skýrara.

Frumvarpið var sent Ráðgjafarnefnd um opinberar eftirlitsreglur til umsagnar. Nefndin tók í umsögn sinni undir þá stefnumörkun sem í frumvarpinu felst að leggja áherslu á að nýta gæðakerfi og innra eftirlit fyrirtækja þannig að unnt sé að draga úr og einfalda opinbert eftirlit.

Í mati fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins á kostnaðaráhrifum frumvarpsins kemur fram að verði frumvarpið óbreytt að lögum sé gert ráð fyrir að rekstrarkostnaður Geislavarna ríkisins aukist um 6,1 m.kr. á ári og að stofnkostnaður verði 8 m.kr. Gert er ráð fyrir að lögin öðlist gildi frá og með 1. janúar 2009 og að allur kostnaður af framkvæmd þeirra rúmist innan fjárhagsramma heilbrigðisráðuneytis.

Virðulegi forseti.

Ég hef nú gert grein fyrir meginatriðum frumvarpsins. Ég tel mikilvægt að frumvarp þetta nái fram að ganga á þessu þingi og leyfi mér því, virðulegi forseti, að leggja til að frumvarpinu verði vísað til háttvirtrar heilbrigðisnefndar og til annarrar umræðu.”



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum