Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. febrúar 2008 Heilbrigðisráðuneytið

Starfsleyfi heilbrigðisstétta til landlæknis

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, mælti í dag fyrir frumvarpi sem felur í sér að útgáfa starfsleyfa flyst frá ráðuneyti til landlæknis. Heilbrigðisráðherra sagði í framsöguræðu sinni að eðlilegast væri að útgáfa starfsleyfanna flyttist til landlæknis þar sem hér væri um að ræða dæmigerða starfsemi stofnunar og ekki ráðuneytis. Þá tengdist frumvarpið aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar um Einfaldara Ísland og væri liður í tveggja ára áætlun heilbrigðisráðuneytisins um aðgerðir til einföldunar opinberra reglna og stjórnsýslu.

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, bætti við að annars staðar á Norðurlöndum væru það undirstofnanir ráðuneyta sem sjá um útgáfu starfsleyfa og vottorða sem tengdust þeim og gat þess að undirbúningsvinna vegna laga- og reglugerðabreytinga að því er varða starfsleyfi heilbrigðisstétta er hjá ráðuneytum. Og ráðherra bætti við: “Í annan stað tel ég að frumvarpið sé ákjósanlegt út frá sjónarmiðum um réttaröryggi. Ef það verður að lögum getur umsækjandi um starfsleyfi borið ákvörðun landlæknis undir ráðuneytið og þannig fengið fjallað um mál sitt á tveimur stjórnsýslustigum.

Loks er hér um að ræða einföldun á málsmeðferð og styttingu á málsmeðferðartíma en ráðuneytið hefur sent flestar umsóknir um starfsleyfi til umsagnar hjá landlækni.

Með þessu frumvarpi er þó aðeins tekið fyrsta skrefið í átt til einföldunar á þessu sviði.  Í heilbrigðisráðuneytinu hefur verið unnið að samningu lagafrumvarps um heilbrigðisstéttir með það að markmiði að þær muni allar heyra undir ein lög.  Nú er í gildi fjöldi laga og reglugerða um heilbrigðisstéttir sem nánast öll byggja á læknalögum og vísa í þau.  Einn lagabálkur um heilbrigðisstéttir, eins og stefnt er að, mun því leiða til enn frekari einföldunar.

Helstu atriði frumvarpsins eru:

Í fyrsta lagi að hvarvetna þar sem þess er getið í lögum um heilbrigðisstéttir að heilbrigðisráðherra gefi út starfsleyfi er lagt til að útgáfa leyfanna flytjist til landlæknis.

Í öðru lagi er heiti heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis breytt í heilbrigðisráðherra og heilbrigðisráðuneyti þar sem það á við og er það í samræmi við lög nr. 109/2007 um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969.

Í þriðja lagi eru nokkur úrelt ákvæði laga um heilbrigðisstéttir lagfærð og leiðrétt.

Hæstvirtur forseti.

Í ræðu minni hef ég farið í stórum dráttum yfir ástæður þess að ég legg fram frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna flutnings á útgáfu starfsleyfa til landlæknis.

Megintilgangur breytinganna er að um er að ræða stjórnsýslu sem telja verður að eigi frekar heima á verksviði stofnunar en ráðuneytis og sjónarmið um réttaröryggi.  Umsækjandi  um starfsleyfi getur borið ákvörðun landlæknis undir ráðuneytið og þannig fengið fjallað um mál sitt á tveimur stjórnsýslustigum. Málsmeðferð verður einfaldari og styttri en ráðuneytið hefur sent flestar umsóknir um starfsleyfi til umsagnar hjá landlækni.

Ég tel mikilvægt að frumvarp þetta nái fram að ganga á þessu þingi og leyfi mér því, virðulegi forseti, að leggja til að frumvarpinu verði vísað til háttvirtrar heilbrigðisnefndar og til annarrar umræðu.”



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum