Hoppa yfir valmynd

Frétt

6. febrúar 2008 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Heimasíða Veðurstofunnar valin besti vefur í almannaþjónustu

Íslensku vefverðlaunin 2007
Íslensku vefverðlaunin 2007

Veðurstofa Íslands fékk verðlaun fyrir besta vef í almannaþjónustu þegar Íslensku vefverðlaunin 2007 voru veitt 1. febrúar síðastliðinn.

Í umsögn dómnefndar um vef Veðurstofunnar sagði: ,,Sjaldan hefur sést jafn vel heppnuð breyting á vef. Allt er til sóma, viðmótið er vel hannað, nytsamlegt og aðgengilegt, sem gerir öllum kleift að skoða vefinn. Einnig er vefurinn mjög gagnvirkur og hægt að skoða allt það nýjasta tengt veðurfari, mengun jarðskjálftum og fleiru".

Vefur Veðurstofu Íslands



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum