Hoppa yfir valmynd

Frétt

20. febrúar 2008 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum

Merki Kvískerjasjóðs
Kvískerjasjóður

Kvískerjasjóður er stofnaður af Umhverfisráðuneytinu, til heiðurs systkinunum á Kvískerjum í Öræfum, fyrir framlag þeirra til öflunar þekkingar og rannsókna á náttúru og sögu Austur Skaftafellssýslu. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúrufari og menningarminjum í Austur Skaftafellssýslu með veitingu rannsóknastyrkja til einstaklinga og stofnana.

Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2008.

Horft verður sérstaklega til umsókna sem tengjast störfum og áhugasviði Kvískerjasystkina.

Umsóknum skal fylgja:

  • Lýsing á verkefninu, þar sem lögð skal fram greinagóð lýsing á verkefninu og markmiðum þess.
  • Tímaáætlun, sem gerir grein fyrir framvindu verksins.
  • Gerð skal grein fyrir helstu samstarfsaðilum
  • Gerð skal grein fyrir fjárhagsáætlun verkefnisins, framlagi samstarfsaðila og fjárhæð sem sótt er um.

Umsóknarfrestur er til 29. febrúar 2008 og skal umsóknum skilað í rafrænu formi. Öllum umsóknum verður svarað. Úthlutað verður fyrir lok mars.

Umsóknir skal senda til formanns sjóðsstjórnar, Sigurlaugar Gissurardóttur, Brunnhól á Mýrum, 781 Hornafjörður.  Merktar:  Kvískerjasjóður

Nánari upplýsingar veittar í síma: 478 1029 eða á netfangi: [email protected]



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum