Hoppa yfir valmynd

Frétt

18. apríl 2008 Heilbrigðisráðuneytið

Sérnámsstöður í heimilislækningum

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir átta námsstöður til sérnáms í heimilislækningum lausar til umsóknar. Stöðurnar eru lausar frá 1. ágúst 2008 og eru til þriggja ára.

Gert er ráð fyrir að sérnámslæknir starfi á heilsugæslustöðvum bæði í þéttbýli og dreifbýli og á sjúkrahúsum og taki einnig þátt í fræðilegu námi. Námið byggir á marklýsingu fyrir sérnám í heimilislækningum (FÍH 2008) og er skipulagt nánar í samráði við kennslustjóra sérnáms.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Íslands og fjármálaráðherra.

Umsóknarfrestur er til 20. maí nk. Umsóknir með upplýsingum um fyrra nám og störf sendist Sveini Magnússyni, skrifstofustjóra í heilbrigðisráðuneytinu, Vegmúla 3, 150 Reykjavík.  Nánari upplýsingar um stöðurnar veitir Alma Eir Svavarsdóttir, aðjúnkt, í síma 585-1800.

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum