Hoppa yfir valmynd

Frétt

7. maí 2008 Dómsmálaráðuneytið

Samvinna dóms- og kirkjumálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis um starfrækslu meðferðargangs á Litla-Hrauni

Frá undirritun samningsins
Samningur undirritaður.

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra undirrituðu í dag samning sem tryggir fé til að standa undir rekstri við sérstakan meðferðargang í fangelsinu á Litla-Hrauni þar sem fangar sem kjósa svo fá hjálp við að vinna sig út úr vítahring andfélagslegs hugarfars, afbrotahegðunar og vímuefnamisnotkunar.

Undanfarna mánuði hefur verið starfræktur sérstakur meðferðargangur á Litla-Hrauni þar sem fangar sem dvelja á ganginum fá víðtækan stuðning og einstaklingsmiðaða ráðgjöf með það að markmiði að ná þeim út úr vítahring andfélagslegs hugarfars, afbrotahegðunar og vímuefnamisnotkunar. Fangarnir gangast undir ákveðnar reglur og skuldbinda sig m.a. til að neyta engra vímuefna meðan þeir dvelja á meðferðarganginum.

Um er að ræða tilraunaverkefni sem upphaflega var hugsað til sex mánaða og að þeim liðnum skyldi reynslan vera metin og tekin ákvörðun um framhaldið.

Það er skemmst frá því að segja að árangurinn er mjög góður og því hafa dóms- og kirkjumálaráðherra og heilbrigðisráðherra tekið höndum saman til að tryggja áframhaldandi starfsemi meðferðargangsins. Leggur hvort ráðuneytanna fyrir sig fram 7,5 milljónir, alls 15 milljónir, sem dugir fyrir rekstrinum út þetta ár. Að auki verður sett á laggirnar samráðsnefnd ráðuneytanna sem mun vinna að heildarstefnumótun í þessum málum.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum