Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. júní 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda

Þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda sem samþykkt var samhljóða á Alþingi í lok vorþings hefur verið birt. Í áætluninni eru tíunduð þau verkefni sem unnið skal að til að tryggja réttindi íbúa af erlendum uppruna, aðgang þeirra að opinberri þjónustu og aðlögun.

Ályktun Alþingis byggir á framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda sem birt var sem athugasemdir við þingsályktunartillöguna þegar hún var lögð fyrir Alþingi af hálfu félags- og tryggingamálaráðherra. Í framkvæmdaáætluninni er gerð grein fyrir því hvernig ríkisstjórnin hyggst vinna að framgangi þeirra verkefna sem þingsályktunin tekur til.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum