Hoppa yfir valmynd

Frétt

10. júlí 2008 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Jákvæð afstaða til Veðurstofunnar

Veðurstofa Íslands
Veðurstofa Íslands

Um 90% landsmanna telja Veðurstofu Íslands veita góða eða mjög góða þjónustu og um 75% bera mikið traust til stofnunarinnar. Þetta er niðurstaða könnunar sem Capacent Gallup gerði í maí á afstöðu þjóðarinnar til átján opinberra stofnana sem eiga í miklum samskiptum við almenning.

Í átta spurningum könnunarinnar var spurt um ánægju með þjónustu, traust, ímynd og trúverðugleika, viðmót starfsmanna og framsækni stofnunar. Í svörum tæplega 2.400 landsmanna kom fram að Veðurstofa Íslands fékk í sjö spurninganna hæstu einkunn þessara átján stofnana og var í öðru sæti í einni þeirra.

Þá kom í ljós að vefur Veðurstofunnar, www.vedur.is, er orðinn helsti upplýsingamiðill hennar en meira en 60% þjóðarinnar nefnir hann sem fyrsta kost þegar hún vill afla sér upplýsinga frá stofnuninni. Hefur engin íslensk stofnun náð viðlíka árangri með miðlun upplýsinga á vefnum en vefur Veðurstofunnar var valinn besti vefur í almannaþjónustu árið 2007.

Þær stofnanir sem Capacent Gallup valdi til að spyrja um afstöðu til í þessari könnun voru eftirfarandi, auk Veðurstofunnar: Byggðastofnun, Fasteignamat ríkisins, Fjármálaeftirlitið, Hagstofa Íslands, Heilsugæslan, Landspítali Háskólasjúkrahús, Íbúðalánasjóður, Lögreglan, Neytendastofa, Ríkisskattstjóri, Tollstjórinn í Reykjavík, Tryggingastofnun, Umferðarstofa, Umhverfisstofnun, Útlendingastofnun, Vegagerðin og Vinnumálastofnun.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum