Hoppa yfir valmynd

Frétt

18. júlí 2008 Dómsmálaráðuneytið

Sameiginleg niðurstaða fundar dóms- og kirkjumálaráðherra og borgarstjóra, 18. júlí 2008

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og Ólafur F. Magnússon borgarstjóri eru sammála um mikilvægi öflugrar löggæslu. Ávinningur sé af skipulegu samstarfi lögreglu og borgaryfirvalda.

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og Ólafur F. Magnússon borgarstjóri eru sammála um mikilvægi öflugrar löggæslu. Ávinningur sé af skipulegu samstarfi lögreglu og borgaryfirvalda. Fagnaði ráðherrann því framtaki Reykjavíkurborgar að ráða sérstaka menn til að auka öryggisgæslu í miðborginni. Samstarf af þessu tagi ætti að þróa áfram í samvinnu lögreglu og sveitarfélaga.  Í því sambandi var rætt um hverfagæslu til eftirlits með tilteknum svæðum, grunsamlegum eða óeðlilegum mannaferðum og hópasöfnun unglinga og miðlun upplýsinga um slíkt til  lögreglu.  Hverfagæsla kæmi hins vegar aldrei í stað öflugrar löggæslu í borginni.  Var ákveðið, að hugað skyldi að gerð samkomulags lögreglu og Reykjavíkur um skipulegt samstarf um hverfagæslu.  Það er sameiginlegt markmið ráðherra og borgarstjóra að tryggja sem best öryggi borgaranna með öflugri löggæslu.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum