Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. ágúst 2008 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfisráðherra skipar forstjóra nýrrar Veðurstofu Íslands

Árni Snorrason
Árni Snorrason

Umhverfisráðherra hefur ákveðið að skipa Árna Snorrason sem forstjóra nýrrar stofnunar, Veðurstofu Íslands til næstu fimm ára. Árni hefur starfað sem forstöðumaður Vatnamælinga Orkustofnunar frá árinu 1987.

Árni lauk doktorsnámi í vatnaverkfræði við Háskóla Illinois í Bandaríkjunum árið 1983 og hefur verið gestafræðimaður við Háskóla New Hampshire og Háskóla Arizona.

Gert er ráð fyrir að Árni Snorrason taki fljótlega til starfa sem forstjóri Veðurstofu Íslands til að undirbúa starfsemi hinnar nýju stofnunar. Hún verður stofnuð formlega þann 1. janúar næstkomandi. Stofnunin verður til við sameiningu Veðurstofu Íslands og Vatnamælinga Orkustofnunar og mun starfa á grundvelli laga nr. 70/2008 um Veðurstofu Íslands sem samþykkt voru á Alþingi hinn 30. maí síðastliðinn.

Umsóknarfrestur um stöðuna var til 11. júlí síðastliðinn og voru ellefu umsækjendur um starfið.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum