Hoppa yfir valmynd

Frétt

29. september 2008 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 6/2008

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 17.200
  2. Gisting í einn sólarhring kr. 10.000
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 7.200
  4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 3.600

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2008. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 3/2008 dags. 30. maí 2008.

Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.

Ennfremur er vakin athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html.

Reykjavík, 26. september 2008
Ferðakostnaðarnefnd



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum