Hoppa yfir valmynd

Frétt

8. október 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Sameiginleg yfirlýsing um velferð barna

Hugum að velferð barna.

Íslendingar standa nú á miklum tímamótum sem hafa víðtæk áhrif á unga sem aldna. Mikilvægt er að huga sérstaklega að velferð barna og unglinga á þessum tímum.

Höfum eftirfarandi í huga:

  • Jákvæð samvera barna með fjölskyldunni skapar öryggi.
  • Börnin þurfa að finna að á þau sé hlustað og að þeirra nánustu séu ekki í hættu
  • Höldum fjölskylduvenjum og festu þó að mikið gangi á í samfélaginu.
  • Notum matartíma fjölskyldunnar til að sinna þörfum barnanna fyrir jákvæða athygli.
  • Ræðum á yfirvegaðan hátt að fjármálakreppan er tímabundin.
  • Útskýrum fyrir börnunum að framtíðin er björt þótt á móti blási í dag.
  • Verum góð fyrirmynd þegar kemur að vanda og lausnum.
  • Styðjum börnin til þess að takast á við mótlæti á uppbyggjandi hátt
  • Hlúum vel að þeim sem okkur þykir vænt um

Verum þess minnug að hér er um tímabundna erfiðleika að ræða sem við Íslendingar munum vinna okkur í gegnum. Miklu máli skiptir að við tökumst á við þessa erfiðleika þannig að við byggjum á styrkleikum okkar og leggjum áherslu á baráttugleði, bjartsýni og samkennd.

Heilbrigðisráðuneytið
Menntamálaráðuneytið
Félags- og tryggingamálaráðuneytið
Barnaverndarstofa
Landlæknir
Lýðheilsustöð
Umboðsmaður barna
BUGL/LSH
Vinnueftirlit ríkisins



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum