Hoppa yfir valmynd

Frétt

20. október 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Jafnréttisþingi frestað fram í janúar 2009

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur ákveðið að fresta fyrirhuguðu jafnréttisþingi, sem halda átti skv. 10. gr. nýrra jafnréttislaga hinn 7. nóvember næstkomandi, fram í janúar á næsta ári.

Ástæðan er sú að þinginu er ætlað að höfða til stjórnenda í fyrirtækjum og stofnunum, stjórnmálamanna, fulltrúa frjálsra félagasamtaka og almennings. Ráðuneytinu þykir líkur benda til þess að jafnréttisþingið nái ekki markmiðum sínum í því óvissuástandi sem nú ríkir í efnahagsmálum þjóðarinnar þar sem fjölmargir þeirra sem ráðuneytið vill virkja þar til umræðu eru núna bundnir dag og nótt við að ráða fram úr aðkallandi úrlausnarefnum sem tengjast þeim sérstöku aðstæðum sem ríkja á fjármálamarkaði.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum