Hoppa yfir valmynd

Frétt

21. október 2008 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Málþing Menntavísindasviðs Háskóla Íslands um rannsóknir, nýbreytni og þróun í skólastarfi

Málþing Menntavísindasviðs Háskóla Íslands verður haldið dagana 23. - 24. október. Málþingið ber yfirskriftina: Listin að læra

Málþing Menntavísindasviðs Háskóla Íslands um rannsóknir, nýbreytni og þróun í skólastarfi verður haldið dagana 23. – 24. október næstkomandi. Eins og fram kemur í dagskrá þingsins ber málþingið að þessu sinni yfirskriftina:

Listin að læra

Að þessu sinni er hvers kyns sköpun, í bæði námi og kennslu, gert hátt undir höfði og að vanda verður boðið upp á fjöldann allan af áhugaverðum fyrirlestrum er tengjast rannsóknum, nýbreytni og þróun á sviði uppeldis, menntunar og þjálfunar. Eins og undanfarin ár er málþingið haldið í samráði og samvinnu við menntamálaráðuneyti, Heimili og skóla, Þroskaþjálfafélag Íslands, Mennta- og leikskólasvið Reykjavíkurborgar, Kennarasamband Íslands, Grunn – samtök forstöðumanna skólaskrifstofa og Félag framhaldsskóla.

  • Skráning á málþingið og nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
  • Málþingið fer fram í aðalbyggingu Menntavísindasviðs v/Stakkahlíð frá kl. 14:00 – 17:00 báða dagana
  • Málþingið er öllum opið og þátttakendum að kostnaðarlausu.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum