Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. nóvember 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Morgunverðarfundur verkefnisstjórnar 50+

Árið 2005 skipaði félagsmálaráðherra sjö manna verkefnisstjórn sem ætlað er að stýra fimm ára verkefni sem hefur það meginmarkmið að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði.

Verkefnisstjórnin hefur lagt áherslur á rannsóknir í starfi sínu og kynnir tvær meistararitgerðir sem skrifaðar hafa verið á þessu ári og tengjast aldurshópnum á vinnumarkaði.

Núverandi staða í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar vekur upp ýmsar spurningar um stöðu hópsins.

Morgunverðarfundur verður haldinn miðvikudaginn 19. nóvember 2008 kl. 8.30–10.00 á Grand hóteli í Reykjavík, Háteig B, þar sem fjallað verður um stöðu miðaldra og eldra fólks nú þegar þrengir að á vinnumarkaði. Á fundinum munur þrír frummælendur fjalla um sérstöðu hópsins í þróun og ástandi samtímans.

   

Dagskrá

Karl Sigurðsson, forstöðumaður vinnumálasviðs Vinnumálastofnunar, gerir grein fyrir þróun atvinnuleysis hjá fólki sem komið er yfir fimmtugt og stöðu þeirra á vinnumarkaði.

Guðfinna Harðardóttir, sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, segir frá niðurstöðum rannsóknar sem gerð var í tengslum við gerð meistararitgerðar í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands – Viðhorf stjórnenda í verslun til færni miðaldra og eldra starfsfólks.

Margrét Linda Ásgrímsdóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá Vinnumálastofnun á Suðurnesjum, gerir grein fyrir verkefni varðandi miðaldra og eldra fólk á atvinnuleysisskrá sem unnið var fyrir vinnumarkaðsráð Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum.

Ólöf Inga Sigurbjartsdóttir, framkvæmdastjóri Héraðs- og Austurlandsskóga, segir frá niðurstöðum rannsóknar sem gerð var meðal fyrirtækja í tveimur atvinnugreinum hvað varðar aldursstjórnun og stefnumótun við starfslok og er gerð í tengslum við meistararitgerð í viðskiptafræðum við Háskólann á Bifröst – Aldursstefna fyrirtækja. Starfslok – stefnumótun.

Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur og aðstoðarforstöðumaður Rannsókna- og þróunarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri, mun fjalla um breytingar í atvinnulífinu með hliðsjón af reynslu frá Akureyrarsvæðinu.

   

Morgunverður framreiddur frá kl. 8.00.

Allir velkomnir.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum