Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. desember 2008 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ávarp umhverfisráðherra á loftslagsfundinum í Poznan

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra flytur ræðu á loftslagsráðstefnunni í Poznan
Í Poznan í Póllandi

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra flutti í dag ræðu á 14. aðildarríkjaþingi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Poznan í Póllandi. Á þinginu var fram haldið samningaviðræðum um hertar aðgerðir í loftslagsmálum, sem hófust fyrir rúmum tveimur árum og á að ljúka með samkomulagi á 15. aðildarríkjaþinginu í Kaupmannahöfn í lok árs 2009.

Umhverfisráðherra sagði að Ísland vildi reyna að halda hlýnun andrúmsloftsins innan við 2°C frá því fyrir iðnbyltingu. Slíkt þýddi að öll ríki sem losa mikið magn gróðurhúsalofttegunda þyrftu að taka virkan þátt, en þróuð ríki yrðu að leiða baráttuna. Nauðsynlegt væri að gera alla helstu efnahagsgeira loftslagsvæna og þróa og dreifa hreinni tækni, ekki síst á sviði orkumála. Ísland vildi miðla tækni á sviði jarðvarma til þróunarríkja.

Umhverfisráðherra vakti athygli á tillögu Íslands um að endurheimt votlendis verði viðurkennd sem leið til að binda kolefni úr andrúmslofti. Framræst og skemmt votlendi væri í dag uppspretta koltvísýrings (CO2) , en hægt væri að minnka losunina og jafnvel snúa henni við og binda kolefni úr lofthjúpnum með aðgerðum til að endurheimta votlendi.

Ræða umhverfisráðherra í heild sinni á ensku (pdf-skjal).



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum