Hoppa yfir valmynd

Frétt

31. desember 2008 Innviðaráðuneytið

Uppgjör framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga

Samgönguráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um uppgjör tekjujöfnunarframlaga og útgjaldajöfnunarframlaga á árinu 2008.

Tekjujöfnunarfamlög 2008

Farið hefur fram endurskoðun á útreikningi tekjujöfnunarframlaga fyrir árið 2008, sbr. 12. gr. reglugerðar nr. 113/2003. Við endurskoðunina var tekið mið af endanlegum útsvarsstofni sveitarfélaga vegna tekna 2007.
Ráðgjafarnefndin lagði til að endanleg tekjujöfnunarframlög ársins næmu tæplega 1.299 milljónum króna. Uppgjör framlaganna fór fram 29. desember síðastliðinn.


Heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga 2008

Ráðgjafarnefndin lagði til að heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga ársins 2008, sbr. 13. gr. reglugerðar nr. 113/2003, næmi 4.400 milljónum króna. Framlögin hafa verið endurskoðuð með tilliti til tekna sveitarfélaga og íbúafjölda í sveitarfélögum 1. desember 2007. Uppgjör framlaganna fór fram 30. desember síðastliðinn.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum