Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. janúar 2009 Innviðaráðuneytið

Keflavíkurflugvöllur ohf. tekur til starfa

Opinbera hlutafélagið Keflavíkurflugvöllur tekur til starfa í dag en í því er sameinuð starfsemi Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Við athöfn með starfsmönnum og stjórn félagsins á morgun, fostudag, mun Kristján L. Möller samgönguráðherra hleypa fyrirtækinu formlega af stað.

Félagið er stofnað samkvæmt heimild í lögum sem samþykkt voru á Alþingi 30. maí. Samgönguráðherra fer með hlut ríkisins í félaginu og framkvæmd laganna. Forstjóri Keflavíkurflugvallar ohf. er Björn Óli Hauksson rekstrarverkfræðingur.

Fimm manna aðalstjórn félagsins skipa: Jón Gunnarsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Ellert Eiríksson og Pétur J. Eiríksson. Varamenn eru: Eysteinn Eyjólfsson, Guðlaug Finnsdóttir, Jón Norðfjörð, Björk Guðjónsdóttir og Magnea Guðmundsdóttir.

Nýja félagið tekur við rekstri, viðhaldi og uppbyggingu Keflavíkurflugvallar sem borgaralegs flugvallar auk hagnýtingar flugvallarsvæðisins í þágu öryggis- og varnartengdrar starfsemi svo og rekstri, viðhaldi og uppbyggingu flugstöðvarinnar. Félaginu er heimilt að standa að stofnun annarra félaga og fyrirtækja og gerast eignaraðili að öðrum félögum og fyrirtækjum. Þannig er félaginu heimilt að taka þátt í félagi sem ætlað væri að annast atvinnuuppbyggingu á nærsvæði flugvallarins.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum