Hoppa yfir valmynd

Frétt

7. janúar 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Skipulagsbreytingar heilbrigðisþjónustunnar í landinu

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur í hyggju að gera umtalsverðar breytingar á skipulagi heilbrigðisþjónustunnar á næstunni. Skipulagsbreytingarnar byggjast á vinnu sem farið hefur fram á vegum heilbrigðisráðuneytisins undanfarna mánuði, eða frá því ný lög um heilbrigðisþjónustu tóku gildi haustið 2007.

Með skipulagsbreytingunum hyggst ráðherra ná fram hagræðingu í rekstri heilbrigðisstofnana víðs vegar um landið og treysta um leið undirstöður grundvallarstarfsemi heilbrigðisþjónustunnar.

Breytingarnar hafa verið unnar í samráði við stjórnendur stofnananna sem þær taka til og meginmarkmið þeirra hafa verið kynnt starfsmönnum viðkomandi stofnana. Á næstu dögum verður unnið með stjórnendum stofnana að útfærslu breytinganna hvað varðar tilfærslur verkefna og starfsfólks. Þetta verður gert í vinnuhópum sem skipaðir verða úr hópi stjórnenda stofnananna og skila þeir útfærslu sinni til ráðherra fyrir 19. janúar 2009.

Megin breytingarnar verða þessar að því er varðar spítalarekstur á Höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess:

  • St. Jósefsspítala-Sólvangi verður alfarið falið hlutverk á sviði öldrunarlækninga og hvíldarinnlagna
  • Sérfræðingum og fagfólki, sem þar hafa gert skurðaðgerðir, verður boðin aðild að því að byggja upp       skurðstofurekstur í nýrri aðstöðu á Suðurnesjum 
  • Meltingasjúkdóma - og lyflækningadeild verður tengd starfsemi á Landspítalans og hin góða reynsla af göngudeildarstarfsemi á St. Jósefsspítala þróuð með sérfræðingum þaðan
  • Landspítalinn mun yfirtaka skurðstofurekstur á Selfossi
  • Vaktir á skurðstofum á Selfossi og í Keflavík verða lagðar af


Breytingarnar á landsbyggðinni fela í sér verulega einföldun stjórnsýslu stofnana með sameiningu þeirra og ákvörðun um stóraukna samvinnu þeirra. Er þetta meðal annars gert í framhaldi af setningu nýrra laga um heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi fyrir rúmu ári.

Þetta eru helstu breytingarnar á landsbyggðinni:

  • Allar heilbrigðisstofnanir og heilsugæslustöðvar á Norðurlandi verða sameinaðar í eina undir forystu Sjúkrahússins á Akureyri, sem verður Heilbrigðisstofnun Norðurlands og mun m.a.  taka við hlutverki ráðuneytisins varðandi samning um heilsugæsluna á Akureyri
  • Allar heilbrigðisstofnanir og heilsugæslustöðvar á Vesturlandi verða sameinaðar í eina með höfuðstöðvar á Akranesi
  • Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja verður sameinuð Heilbrigðisstofnun Suðurlands sem jafnframt tekur við umsjón með samningi sem í gildi er milli Heilbrigðisstofnunarinnar á Höfn í Hornafirði og heilbrigðisráðuneytisins
  • Heilbrigðisstofnunin á Patreksfirði sameinast Heilbrigðisstofnun Vestfjarða sem hefur höfuðstöðvar á Ísafirði
  • Aukið verður enn frekar samstarf milli Heilbrigðisstofnunar Austurlands og sjúkrahússins á Akureyri

Einfaldari stjórnsýsla, hagkvæmari rekstur og aukin samvinna stofnanna er talin geta dregið verulega úr útgjaldaaukningunni sem er staðreynd varðandi þær stofnanir sem hér eiga í hlut, en markmið breytinganna er að slá skjaldborg um og tryggja kjarnastarfsemi þessara mikilvægu stofnana á sviði heilbrigðismála á erfiðum tímum.

Stefnt er að því að sameiningin taki formlega gildi 1. marz 2009.

Sjá nánar um heilbrigðisumdæmi, lög um heilbrigðisþjónustu og reglugerðir:
(Ath. opnast í nýjum glugga)

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum