Hoppa yfir valmynd

Frétt

18. febrúar 2009 Innviðaráðuneytið

Rætt um íslensk byggðamál á krossgötum

Íslensk byggðamál á krossgötum er yfirskrifs ráðstefnu sem halda á í Borgarbyggð föstudaginn 20. febrúar. Stendur hún daglangt eða frá 10 til 16 og flutt verða nokkur erindi og endað á pallborðsumræðum. Ráðstefnustjóri er Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri í samgönguráðuneytinu.

Að ráðstefnunni standa Samband íslenskra sveitarfélaga, iðnaðarráðuneyti, samgönguráðuneyti, fjármálaráðuneyti, Byggðastofnun og landshlutasamtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Tilefni hennar er samþykkt landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga um endurskoðun á byggðastefnu sambandsins og þátttaka landshlutasamtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra í „Opnum dögum“ Héraðanefndar ESB og Norðurslóðaframlagi þar. Á ráðstefnunni verða evrópsk byggðamál í brennidepli með sérstakri áherslu á stöðu Norður-Evrópu. Stjórnskipulag og skilvirkni byggðaaðgerða bæði hér á landi og í nágrannalöndunum verða einnig til umfjöllunar.

Skráning fer fram á www.samband.is í síðasta lagi 18. febrúar. Rútuferð verður skipulögð frá Borgartúni 30 í Reykjavík á ráðstefnustað og tilbaka að ráðstefnunni lokinni.

Dagskrá ráðstefnunnar er sem hér segir:

09:30-10:00 Skráning.

10:00-10:15 Setning Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.

10:15-10:30 Ávarp. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra.

10:30-11:00 Byggðastefna ESB með áherslu á N-Evrópu. Nicola de Michelis, deildarstjóri byggðaskrifstofu Framkvæmdastjórnar ESB.

11:00-11:30 Staða og framtíðarhorfur Norðurslóða – „Foresight on the future of the Northern sparsely populated areas /Northern Periphery in 2020“. Erik Gløersen, fræðimaður hjá Nordregio (Nordic Centre for Spatial Development).

11:30-11:45 Tækifæri og lærdómur í evrópskum byggðamálum fyrir Ísland. Reinhard Reynisson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, sem vann á síðasta ári greinargerð fyrir SSV um möguleika og tækifæri Vesturlands til þátttöku í svæðasamstarfi Evrópu.

11:45-12:15 Fyrirspurnir og umræður.

12:15-13:00 Matarhlé.

13:00-13:30 Hvernig er staðið að mótun og framkvæmd byggðastefnu í nágrannalöndum Íslands. Erik Gløersen.

13:30-14:00 Samhæfing byggðastefnu og byggðaáætlanagerðar við aðra opinbera áætlanagerð. Ásdís Hlökk Theódórsdóttir skipulagsfræðingur, aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík.

14:00-14:40 Sjónarmið ríkis og sveitarfélaga varðandi aukið samstarf og samhæfingu við mótun og framkvæmd byggðastefnu. Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, og Páll Brynjarsson, sveitarstjóri Borgarbyggðar.

14:40-15:00 Kaffihlé.

15:00-16:00 Panelumræður undir stjórn Finnboga Rögnvaldssonar sveitarstjórnarmanns í Borgarbyggð með þátttöku Hjalta Þórs Vignissonar bæjarstjóra sveitarfélagsins Hornafjarðar, Aðalsteins Óskarssonar framkvæmdastjóra FSV, Önnu M. Guðjónsdóttur forstöðumanns Brusselskrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Sædísar Ívu Elíasdóttur framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Suðurlands.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum