Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. febrúar 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskað eftir tilnefningum vegna Kuðungsins 2008

Dagur umhverfisins
Dagur umhverfisins

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnanir, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, Kuðunginn fyrir árið 2008. Kuðungurinn verður afhentur á degi umhverfisins 25. apríl

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur sem er tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum. Til að koma til álita við veitingu Kuðungsins þarf fyrirtækið eða stofnunin að hafa skarað fram úr á einu eða fleiri eftirtöldum sviðum: Umhverfisstjórnun, innleiðingu nýjunga í umhverfisvernd, hreinni framleiðslutækni, lágmörkun úrgangs, mengunarvörnum, umhverfisvænni vöruþróun, framlagi til umhverfismála eða vinnuumhverfi.

Tillögur skulu berast umhverfisráðuneytinu eigi síðar en 25. mars næstkomandi, merktar ,,Kuðungurinn 2008", á póstfangið [email protected] eða með pósti í umhverfisráðuneytið, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík.

Úthlutunarnefnd Kuðungsins hefur verið skipuð. Í henni sitja Harpa Björnsdóttir formaður, skipuð af umhverfisráðherra, Guðmundur Gunnarsson fyrir hönd Alþýðusambands Íslands og Guðrún Eyjólfsdóttir fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins.

Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Þau fyrirtæki sem hafa hlotið viðurkenninguna hingað til eru Kjötverksmiðjan Goði 1994, Gámaþjónustan 1994, Umbúðamiðstöðin 1994, Prentsmiðja Morgunblaðsins 1995, Fiskverkun KEA í Hrísey 1996, Olíufélagið 1997, Fiskversmiðja Haraldar Böðvarssonar á Akranesi 1998, Borgarplast 1999, Íslenska Álfélagið 2000, Árvakur 2002, Hópbílar 2003, Orkuveita Reykjavíkur 2004, Línuhönnun 2005 og Bechtel 2006 og Sólarræsting fyrir árið 2007.

Afhending Kuðungsins á degi umhverfisins 2008.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum