Hoppa yfir valmynd

Frétt

12. mars 2009 Dómsmálaráðuneytið

Mælt fyrir frumvarpi til laga um breytingar á frestum sem gilda í aðdraganda kosninga

Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000. Með frumvarpinu er bætt inn í lögin ákvæði til bráðabirgða um breytingar á ýmsum frestum sem gilda í aðdraganda kosninga.

Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000. Með frumvarpinu er bætt inn í lögin ákvæði til bráðabirgða um breytingar á ýmsum frestum sem gilda í aðdraganda kosninga, með hliðsjón af yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að kosið verði til Alþingis 25. apríl nk.

Lagt er til að við kosningarnar í vor gildi eftirfarandi frestir:

  • viðmiðunardagur staðfestrar kjörskrár er styttur úr fimm vikum fyrir kjördag í fjórar vikur;
  • kjörskrá skal leggja fram almenningi til sýnis átta dögum fyrir kjördag í stað tíu daga;
  • landskjörstjórn skal birta auglýsingu um mörk kjördæmanna í Reykjavík eigi síðar en þremur vikum fyrir kjördag í stað fjögurra vikna.
  • frestur til að tilkynna framboð er til kl. 12 á hádegi 11 dögum fyrir kjördag, í stað 15 daga;
  • auglýsingar á framboðum skulu birtast eigi síðar en fimm dögum fyrir kjördag í stað tíu daga.

Þá er í frumvarpinu lagt til að gerðar verði nokkrar aðrar minni háttar breytingar á kosningalögunum. Þær fela ekki í sér efnislegar breytingar heldur miða að því að skýra ýmis atriði eða lagfæra. Einnig er uppfærður listi yfir sveitarfélög landsins í samræmi við breytingar vegna sameiningar sveitarfélaga eða breytinga á heitum þeirra.

Sjá frumvarpið hér.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum