Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. mars 2009 Dómsmálaráðuneytið

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar getur hafist á morgun, laugardaginn 14. mars

Þar sem kjördagur fyrir kosningar til Alþingis hinn 25. apríl 2009 hefur verið formlega ákveðinn mun utankjörfundarkosning hefjast hjá sýslumönnum og utanríkisþjónustunni svo fljótt sem kostur er.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar getur hafist á morgun, laugardaginn 14. mars

Þar sem kjördagur fyrir kosningar til Alþingis hinn 25. apríl 2009 hefur verið formlega ákveðinn mun utankjörfundarkosning hefjast hjá sýslumönnum og utanríkisþjónustunni svo fljótt sem kostur er, í samræmi við 56. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur sent sýslumönnum bréf þar sem lögð er áhersla á að atkvæðagreiðslan geti hafist þegar á morgun, laugardaginn 14. mars 2009. Sýslumenn auglýsa hver á sínum stað hvar og hvenær atkvæðagreiðslan getur farið fram.

Samkvæmt lögum um alþingiskosningar hefur kjósandi sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi heimild til að greiða atkvæði utan kjörfundar, eftir þeim reglum sem settar eru í kosningalögunum.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram á eftirfarandi stöðum:

  • Hjá sýslumönnum um allt land, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Þá getur sýslumaður einnig ákveðið að atkvæðagreiðsla á aðsetri embættis fari fram á sérstökum stað utan aðalskrifstofu svo og að atkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stað í umdæmi hans.
  • Hjá hreppstjórum, á skrifstofu eða heimili hreppstjóra.
  • Erlendis, á skrifstofu sendiráðs eða fastanefndar hjá alþjóðastofnun, í sendiræðisskrifstofu eða í skrifstofu kjörræðismanns samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið getur þó ákveðið að utankjörfundaratkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stöðum erlendis. Utanríkisráðuneytið auglýsir einnig hvar og hvenær atkvæðagreiðsla geti farið fram erlendis. Sjá nánar á vef utanríkisráðuneytisins.
  • Sjúkrahúsum, fangelsum, dvalar- og vistheimilum. Kjósanda, sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða vistmaður þar, á dvalarheimili aldraðra eða stofnun fyrir fatlaða, er heimilt að greiða atkvæði á stofnuninni. Með sama hætti fer um vistmann fangelsis. Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar.  Hún má þó ekki fara fram fyrr en í fyrsta lagi 3 vikum fyrir kjördag.
  • Heimahúsi.  Kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun, sbr. framangreint.  Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans.  Slík atkvæðagreiðsla má þó ekki fara fram fyrr en í fyrsta lagi 3 vikum fyrir kjördag.  

 

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
13. mars 2009



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum