Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. mars 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Stefnumót um umhverfis- og auðlindaákvæði í stjórnarskrám

Stefnumót umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða um umhverfis- og auðlindaákvæði í stjórnarskrám.
Stjórnarskrá
Á 12. stefnumóti umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun verður fjallað um umhverfis- og auðlindaákvæði í stjórnarskrám. Á fundinum mun Aðalheiður Jóhannsdóttir, dósent við lagadeild Háskóla Íslands og sérfræðingur í umhverfisrétti, svara spurningunni hverju stjórnarskrárvernd umhverfisins breyti. Ellý Katrín Guðmundsdóttir, sviðsstýra umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar, flytur erindi undir yfirskriftinni: ,,Í hvaða sæti setjum við umhverfið?"
Frumvarp til breytinga á íslensku stjórnarskránni hefur verið lagt fram og í 1. gr. þess er ákvæði um auðlinda og umhverfismál. Hægt er að nálgast frumvarpið á heimasíðu Alþingis.

Stefnumótið fer fram í fundarsal Þjóðminjasafnsins miðvikudaginn 18. mars 2009 kl. 12:00 til 13:30. Stefnumótin eru opnir fundir um umhverfismál sem efst eru á baugi hverju sinni.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum