Hoppa yfir valmynd

Frétt

25. mars 2009 Innviðaráðuneytið

Tvöföldun Suðurlandsvegar í útboð

Samgönguráðherra og vegamálastjóri hafa samþykkt tilhögun áætlunar um breikkun Suðurlandsvegar. Leiðin milli Reykjavíkur og Selfoss yrði 2+2 vegur að undanteknum kafla í Svinahrauni og á Hellisheiði sem yrði 2+1 vegur. Fyrsti hluti verkefnisins verður boðinn út síðar á árinu.
Suðurlandsvegur tvöfaldaður - tilhögun tilkynnt
Suðurlandsvegur tvöfaldaður - tilhögun tilkynnt á fundi með sveitarstjórnarmönnum.

Kristján L. Möller samgönguráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri kynntu fulltrúum nokkurra sveitarstjórna á Suðurlandi og Samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi tillögur og áætlanir um hvernig hagað verður tvöföldun Suðurlandsvegar. Fram kom í máli þeirra á fundinum ánægja með að ráðist skuli í verkið og tilhögun þess.

Meginhluti leiðarinnar verður 2+2 vegur en kaflinn milli Litlu kaffistofunnar og Kambabrúnar verður 2+1 vegur með aðskildum akstursstefnum þar sem vegbreidd er 15,5 metrar.

Þar sem Suðurlandsvegur er með 2+2 sniði verður þversnið hans breitt, með 11 metra miðjusvæði, sem er sams konar tilhögun og á Reykjanesbraut. Þar sem aðstæður eru þröngar, til dæmis á kafla við Rauðavatn, verður vegurinn með svokölluðu þröngu vegsniði, þ.e. með aðskildum akstursstefnum með vegriði og 2+2 kafli um Kamba verður einnig með þeirri tilhögun.

2+1 kaflinn milli Litlu kaffistofunnar og Kambabrúnar verður með vegriði en breiðari en núverandi 2+1 kafli í Svínahrauni. Einnig stendur til að breikka þann 2+1 kafla um einn og hálfan metra, úr 14 metrum í 15,5.

Heildarkostnaður við verkið er áætlaður kringum 15,9 milljarðar króna. Til ráðstöfunar á þessu ári verður kringum einn milljarður og verður fyrst boðinn út tvöföldun kaflans milli Lögbergsbrekku og Litlu kaffistofunnar og síðan kafli næst Vesturlandsvegi.

Meðalumferð á dag er misjöfn um hina ýmsu kafla Suðurlandsvegar og ræður hún meðal annars ákvörðun um útfærslu vegarins og hvort vegamót eru mislæg, á hringtorgi eða í plani. Umferð næst höfuðborginni er tæplega 13 þúsund bílar en er komin niður í um 8 þúsund bíla við Lögbergsbrekku. Á kaflanum milli Lögbergsbrekku og Kambabrúnar er meðal dagsumferðin um 6.500 bílar. og um 7.300 milli Hveragerðis og Selfoss.

Suðurlandsvegur tvöfaldaður - tilhögun tilkynnt      

Tilhögun tvöföldunar Suðurlandsvegar var kynnt á fundi með fulltrúum sveitastjórna á Suðurlandi í morgun og á blaðamannafundi í samgönguráðuneytinu síðdegis.

     


 

 

 Tvöföldun Suðurlandsvegar tilkynnt á blaðamannafundi.      
       


 Kort - tilhögun tvöföldunar      
Hér má sjá hvernig tvöfalda á Suðurlandsveg nema hvað kaflinn milli Litlu kaffistofunnar og Kambabrúnar verður 2+1 vegur með aðskildum akstursstefnum með vegriði. Útboð fyrsta áfanga er ráðgert síðar á þessu ári.      


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum