Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. apríl 2009 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra beinir sjónum að norðurslóðum á leiðtogafundi NATO

Í ræðu á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Strassborg-Kehl um helgina lagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra áherslu á að við þróun nýrrar framtíðarsýnar bandalagsins yrði sérstaklega tekist á við vaxandi mikilvægi norðurslóða og heimskautasvæðanna. Hann benti á að vegna hlýnunar loftslags myndi innan skamms opnast skipaleið milli Kyrrahafs og Atlantshafs. Í kjölfarið myndu stórauknir vöruflutningar milli heimsálfanna hefjast um Norður-Íshafið. Sömuleiðis myndi bráðnun heimskautaíssins opna ný svæði þar sem líklegt væri að vinnsla náttúruauðlinda, svo sem olíu og gass hæfist í framtíðinni.

Utanríkisráðherra varaði við því að ýtt yrði undir hernaðarleg umsvif á norðurslóðum en kvað nauðsynlegt að bandalagsríkin byggju sig undir frekara hlutverk á norðurslóðum í tengslum við aukna umferð og nýtingu svæðanna á næstu áratugum. Í lokaályktun fundarins er Íslendingum sérstaklega þakkað frumkvæði í umræðum um öryggi á norðurslóðum.

Málefni Afganistans voru rædd sérstaklega á leiðtogafundinum og lagði utanríkisráðherra sérstaka áherslu á að bandalagsríkin ýttu undir mannréttindi í Afganistan. Hann gagnrýndi fyrirhugaða lagasetningu afganskra stjórnvalda sem rýra munu rétt kvenna og barna, meðal annars til menntunar. Taldi ráðherrann mjög brýnt að bandalagsríkin beittu sér gegn setningu laganna. Hann sagði að þrátt fyrir erfiða fjárhagsstöðu héldu Íslendingar áfram þátttöku í uppbyggingar- og mannúðarstarfi í Afganistan.

Á lokuðum fundi leiðtoga bandalagsins tókst samkomulag um kjör Anders Fogh Rassmussen forsætisráðherra Dana sem næsta framkvæmdastjóra samtakanna. Í umræðum lýsti Össur Skarphéðinsson fyrir hönd íslensku ríkisstjórnarinnar eindregnum stuðningi við framboð hans.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum