Hoppa yfir valmynd

Frétt

6. apríl 2009 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra lýsir áhyggjum vegna eldflaugaskots N-Kóreu

Utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, lýsir alvarlegum áhyggjum yfir því að stjórnvöld Norður-Kóreu hafi skotið eldflaug á loft 5. apríl sl. þrátt fyrir ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1718 þar sem ráðið krefst þess að Norður-Kórea geri ekki tilraunir með langdrægar skotflaugar.

Ráðherra tekur undir hvatningu alþjóðasamfélagsins um að Norður-Kórea virði alþjóðlegar skuldbindingar sínar og eigi viðræður við önnur ríki til þess að endurbyggja traust í öryggismálum í Norðaustur-Asíu. Vonast er til að viðræður Sex-ríkja hópsins hefjist á ný sem fyrst, en þær miða að því að finna friðsamlega lausn er varðar kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu. Auk Norður-Kóreu eiga sæti í hópnum; Suður-Kórea, Bandaríkin, Kína, Japan og Rússland.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum