Hoppa yfir valmynd

Frétt

17. apríl 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Samvinnan

Samvinnan. Samvinna Vinnumálastofnunar og atvinnulífsins í uppbyggingu ÍslandsFyrirtæki, sveitarfélög, stofnanir og frjáls félagasamtök geta fjölgað starfsmönnum með þátttöku í vinnumarkaðs- úrræðum. Samvinna er milli Vinnumálastofnunar og atvinnulífsins um ýmsar leiðir í þessum efnum. Atvinnurekandi ræður einstakling sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Atvinnurekandinn greiðir einstaklingnum laun samkvæmt gildandi kjarasamningum en á móti þeim greiðslum greiðir Vinnumálastofnun atvinnurekandanum grunnatvinnuleysisbætur einstaklings ásamt 8% mótframlagi í lífeyrissjóð.

Nánari upplýsingar um mismunandi tegundir vinnumarkaðsúræða og reglur sem um þær gilda eru á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum