Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. apríl 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Tæpum milljarði úthlutað til öldrunarmála

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2009. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við tillögur samstarfsnefndar um málefni aldraðra sem fer með stjórn sjóðsins og gerir tillögur til ráðherra um úthlutun samkvæmt lögum um málefni aldraðra.

Samtals úthlutar ráðherra 952 milljónum króna til uppbyggingar hjúkrunarrýma, fækkunar fjölbýla á hjúkrunarheimilum, til endurbóta vegna öryggis- og aðgengismála, viðhalds á húsnæði og endurnýjun búnaðar og til uppbyggingar á félagsaðstöðu fyrir aldraða. Alls voru um 1,4 milljarðar króna til ráðstöfunar í sjóðnum og er ráðgert að tæpum 450 milljónum verði úthlutað síðar á þessu ári.

624 milljónir króna til uppbygging hjúkrunarrýma

Ráðstöfun fjárins byggist að verulegu leyti á framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma á landsvísu til ársins 2012 sem kynnt var í ágúst í fyrra. Hæstu framlögin renna til byggingar hjúkrunarheimilis við Suðurlandsbraut í Reykjavík, 341 milljón króna, hjúkrunarheimilis við Boðaþing í Kópavogi, 135 milljónir króna og hjúkrunarheimilisins Jaðars í Snæfellsbæ, 33 milljónir króna. Á öllum þessum stöðum er unnið að framkvæmdum. Auk þessa fara 115 milljónir króna í uppgjör vegna framkvæmda sem er lokið en voru óuppgerðar af hálfu heilbrigðisráðuneytisins, annars vegar 100 milljónir króna til hjúkrunardeildar á heilbrigðisstofnun Suðurlands og 15 milljónir króna til hjúkrunardeildar á Siglufirði.

328 milljónir króna í endurbætur, viðhald og félagsaðstöðu fyrir aldraða

Til verkefna sem miða að því að fækka fjölbýlum á hjúkrunarheimilum og bæta aðgengi og öryggismál verður varið 205 milljónum króna. Af þeirri upphæð eru um 80 milljónir króna sem greiddar eru vegna verka sem unnin hafa verið á undanförnum tveimur árum en reyndust dýrari en áætlað hafði verið, ekki síst vegna mikilla verðhækkana. Alls eru veittar 63 milljónir króna til bættar þjónustu- og félagsaðstöðu fyrir aldraða og 60 milljónir til ýmis konar viðhalds húsnæðis og endurnýjunar á búnaði.

Afgreiðslu 10 umsókna var frestað

Samstarfsnefnd um málefni aldraðra lagði til að afgreiðslu tíu umsókna yrði frestað þar sem þörf væri á ítarlegri upplýsingum til skýringa á til að taka afstöðu til þeirra og féllst ráðherra á það.

 

 

 

 

 

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum