Hoppa yfir valmynd

Frétt

27. apríl 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Náið fylgst með svínainflúensu

Sóttvarnalæknir fylgist náið með útbreiðslu svínainflúensunnar sem greinst hefur í Mexíkó og ríkjum Bandaríkjanna. Íslendingar fylgjast náið með framvindunni með samstarfi og nánum samskiptum við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO) og hafa jafnframt náin og dagleg samskipti við sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) sem fylgist með þróun mála allan sólarhringinn. Þessar stofnanir vinna svo aftur með sóttvarnastofnuninni í Bandaríkjunum (CDC) og saman fylgjast þessir aðilar með framvindunni og meta stöðuna frá degi til dags.

Hér á landi er unnið samkvæmt nýlegri áætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu sem unnin var af sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra á árunum 2006 – 2008. Samkvæmt þessari áætlun skal auka samráð og samvinnu þegar vá er fyrir dyrum. Einnig skal upplýsa alla hlutaðeigandi. Upplýsingamiðlun ásamt söfnun upplýsinga erlendis frá er verkefni dagsins og hafa fundir staðið yfir í dag. Fleiri fundir eru boðaðir á morgun.

Nýtt afbrigði svínainflúensuveiru sem hefur greinst í mörgum ríkjum Bandaríkjanna og í Mexíkó inniheldur erfðaefni frá svína-, fugla- og mannainflúensu. Einkenni svínainflúensu eru skyndilegur hiti, vöðvaverkir og einkenni frá öndunarfærum. Einkenni svínainflúensunnar í Mexíkó virðast vera skæðari en annars staðar og eru að auki í sumum tilfellum með uppköstum og niðurgangi.

Svínainflúensa hefur verið þekkt sl. 50 ár og þegar hún hefur borist í menn frá svínum hefur hún valdið samskonar einkennum og venjuleg inflúensa og yfirleitt ekki borist manna á milli. Það sem er óvenjulegt við þessa svínainflúensu er að hún getur borist milli manna og virðist valda skæðum sjúkdómi í Mexíkó, en vægum sjúkdómi í Bandaríkjunum. Svínainflúensan sem um ræðir er af A stofni H1N1. Blöndun virðist hafa átt sér stað milli erfðaefnis frá svínastofnum frá Vesturheimi og Evrópu, mannainflúensu og einnig fuglainflúensu.

Í Evrópu hefur enn sem komið er aðeins greinst eitt tilfelli á Spáni með tengsl við Mexíkó, annars staðar í Evrópu eru ekki staðfest tilvik.

WHO hefur enn sem komið er ekki talið ástæðu til að hækka viðbúnaðarstig sitt vegna svínaflensunnar og vegna þess hve upplýsingar eru af skornum skammti og því er á þessari stundu ekki mælt með ferðatakmörkunum.

Yfirvöld hér á landi fylgjast náið með upplýsingum sem berast erlendis frá og miðla þeim jafnóðum og þær berast. Hins vegar eru gefin almenn ráð um sóttvarnir sem taka mið af því að smitleið veirunnar milli manna er með úða og dropum frá öndunarfærum og því mælt með því að halda fyrir vitin með pappírshandþurrku við hnerra og hósta og henda notuðum þurrkum strax í poka eða ruslið og spritta eða þvo hendurnar strax á eftir. Tekið skal fram að þau inflúensulyf sem aflað hefur verið til landsins eru virk gegn svínainflúensunni en bóluefni sem veitt getur vörn er enn ekki tiltækt en verið er að reyna að hefja framleiðslu þess.

Frekari upplýsingar er að finna vefsíðunum www.influensa.is og www.landlaeknir.is



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum