Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. maí 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Yfir 1.000 staðfest inflúensutilvik í heiminum

Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) - „svínainflúensunnar“ - voru í morgun alls 1.008 í nítján ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu).

Einkenni veikinnar eru enn sem komið er væg nema í Mexíkó. Dauðsföll sem rakin eru til veikinnar eru 23, þar af 22 í Mexíkó og eitt í Bandaríkjunum.

Á síðasta sólarhring voru staðfest 30 ný tilvik á Evrópska efnahagssvæðinu, þar af 24 á Spáni.

  • Engin tilfelli inflúensu A (H1N1) hafa verið staðfest hér á landi en rétt er að minna á að hin árlega inflúensa, sem gekk hér í vetur, er enn í gangi á Íslandi og hafa nokkur slík tilfelli verið greind hér á síðustu dögum.
  • Engir sjúklingar með alvarleg einkenni inflúensu hafa verið lagðir inn á Landspítalann núna um helgina.
  • Viðbúnaðarstig vegna yfirvofandi heimsfaraldurs er óbreytt hér landi og ekki áformað að grípa til róttækari aðgerða en þegar hefur verið gert.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin mælir nú með að talað sé um inflúensu A (H1N1) í stað „svínainflúensu“.

Að gefnu tilefni skal tekið fram að embætti sóttvarnalæknis styðst við upplýsingar frá Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins (ECDC) um útbreiðslu inflúensunnar. Þær er að finna á heimasíðu stofnunarinnar http://www.ecdc.europa.eu/. Tölum um útbreiðslu veikinnar frá Sóttvarnastofnuninni annars vegar og Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni hins vegar ber ekki saman í mörgum tilvikum en sóttvarnarlæknir telur upplýsingar hinnar fyrrnefndu áreiðanlegri og vísar til þeirra.

  • Upplýsingar um inflúensuna og ráðstafanir í því sambandi er að finna á landlaeknir.is, almannavarnir.is, influensa.is og heimasíðum Sóttvarnarstofnuanr Evrópusambandsins - ECDC, http://www.ecdc.europa.eu/ og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - WHO, http://www.who.int/en/.
  • Áréttað skal að birgðir sem íslensk heilbrigðisyfirvöld ráða yfir af lyfjum gegn inflúensu A (H1N1), 100.000 skammtar, eru annars vegar Tamiflu (80.000 skammtar) og Relenza (20.000 skammtar). Þetta er tekið fram hér vegna þess að dæmi eru um að í fjölmiðlum hafi verið fullyrt að allar birgðirnar væru Tamiflu-lyf en það er sem sagt ekki rétt.

Staðfest eru 1.008 sjúkdómstilvik inflúensu A (H1N1) að morgni 4. maí 2009

Staðfest tilfelli í Evrópu

Austurríki

1

Danmörk

1

Frakkland        

2

Þýskaland       

8

Írland              

1

Ítalía                

2

Holland           

1

Spánn              

44

Sviss               

1

Bretland          

18

Alls í Evrópu

79

 
 

Staðfest tilfelli utan Evrópu

Kanada            101

101

Kólumbía         1

1

Kosta Ríka       1

1

Hong Kong      1

1

Ísrael                3

3

Mexíkó            590 

590

Suður-Kórea    1

1

Nýja Sjáland    5

5

Bandaríkin        226

226

Alls utan Evrópu

929

 

 

Alls staðfest tilfelli í heiminum öllum

1.008

(Heimild: Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins  http://www.ecdc.europa.eu/)

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum