Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. maí 2009 Innviðaráðuneytið

Dagskrá ráðstefnu sem haldin er í tilefni UT- dagsins 2009

Í tilefni af degi upplýsingatækninnar, UT-deginum, verður haldin ráðstefna þar sem fjallað verður um hvernig hægt er að nýta upplýsingatækni sem verkfæri til að lækka kostnað og bæta þjónustu. Þar verður m.a. kynnt aðferðafræði til að meta kostnað og ávinning af upplýsingatækniverkefnum og sagt frá verkefnum þar sem góður árangur hefur náðst. Að ráðstefnunni standa forsætisráðuneyti, Félag forstöðumanna ríkisstofnana, Samtök upplýsingatæknifyrirtækja og Skýrslutæknifélag Íslands.

Ráðstefnan verður haldin á Hótel Hilton Nordica þriðjudaginn 19. maí n.k.

Hægt er að skrá sig á vefnum sky.is, með tölvupósti á [email protected] eða í síma 553 2460.

Dagskrá (dagskráin til útprentunar á PDF-formi)


12:00

Skráning og afhending ráðstefnugagna
Samlokuhlaðborð frá kl. 12:00-13:00

Spjall með sérfræðingum. Umræðuefni eru eftirfarandi:

  • Rafræn skilríki – Haraldur Bjarnason, Guðmundur Guðmundsson
  • Opinn hugbúnaður - Tryggvi Björgvinsson og Brigitte Jónsson
  • Rafræn eyðublöð – Halla Björg Baldursdóttir, Rebekka Rán Samper
  • Fjarskiptamál og verkefni fjarskiptasjóðs – Ottó V. Winther, Geir Ragnarsson
  • Rafrænir reikningar – Baldur Már Bragason, Þorkell Pétursson og Þórhildur Hansdóttir
  • Umbætur í vefmálum – Arnar Pálsson, Björn Sigurðsson
13:00 Ávarp, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
13:15 Upplýsingatækni til endurreisnar - Netríkið Ísland
Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti
13:35 Hvernig má minnka fyrirhöfn borgara við að sækja opinbera þjónustu - Arðsemi rafrænnar stjórnsýslu og einfaldara regluverks frá sjónarhóli notenda
Jón Óskar Hallgrímsson, hagfræðingur hjá fyrirtækjaráðgjöf PricewaterhouseCoopers hf.
14:00 Aukin þjónusta með minni tilkostnaði
Stefán Eiríksson, Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Halldór Halldórsson framkvæmdastjóri LRH
14:20 Kaffi og spjall með sérfræðingum
14:40 Verkfærakista fyrir rafræna stjórnsýslu - í boði forsætisráðuneytis
Halla Björg Baldursdóttir, verkefnastjóri í rafrænni stjórnsýslu, forsætisráðuneyti
15:00 Opinber gögn: Falinn fjársjóður
Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri DataMarket
15:20 Heilbrigðisþjónusta á Netinu
Kristján G. Guðmundsson, yfirlæknir Heilsugæslunni Glæsibæ
15:40 Facebook og samskiptasamfélög
Maríanna Friðjónsdóttir, sjálfstætt starfandi framkvæmda- og leikstjóri
16:00 Lokaorð
Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar, fyrir hönd Félags forstöðumanna ríkisstofnana.
16:10 Ráðstefnuslit
16:10 -17:00 Spjall með sérfræðingum

Ráðstefnustjóri: Þórólfur Árnason, formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja og forstjóri Skýrr.

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský er 7.500 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn er 9.500 kr.
Þátttökugjald fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis er 4.000 kr.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum