Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. maí 2009 Dómsmálaráðuneytið

Nepal og Pólland bætast í hóp samstarfsríkja á sviði ættleiðinga

Nú hafa Nepal og Pólland bæst í hóp samstarfsríkja á sviði ættleiðinga.

Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra gaf í dag út löggildingu fyrir Íslenska ættleiðingu til að annast milligöngu um ættleiðingar á börnum frá Nepal. Félagið hefur þar með heimild íslenskra stjórnvalda til að annast milligöngu um ættleiðingar á börnum frá sjö löndum: Kína, Kólumbíu, Indlandi, Tékklandi, Makedóníu og Tælandi, auk Nepal. Þá hefur ráðherra einnig gefið út löggildingu fyrir nýtt ættleiðingarfélag, Alþjóðlega ættleiðingu, til að annast milligöngu um ættleiðingar frá Póllandi.

Löggilt ættleiðingarfélög

Löggilt ættleiðingarfélög hafa þann megintilgang að hafa milligöngu um ættleiðingar á börnum milli landa og aðstoða væntanlega kjörforeldra í ættleiðingarferlinu. Hér á landi eins og í mörgum öðrum ríkjum, m.a. norrænu ríkjunum, fara ættleiðingar á börnum frá útlöndum fram fyrir milligöngu löggilts ættleiðingarfélags. Með því að áskilja að löggilt félag hafi milligöngu um ættleiðingar er tryggt eins og kostur er að ættleiðingar fari fram í samræmi við grundvallarreglur Haagsamningsins um vernd barna og samvinnu varðandi ættleiðingar milli landa frá 1993, að alls sé gætt sem gæta ber áður en ættleiðing fer fram og að allur ferill máls sé í samræmi við lög og reglur beggja ríkja.

Nánari upplýsingar um ættleiðingar á vef ráðuneytisins.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum