Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. maí 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Skipað í embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Heilbrigðisráðherra hefur skipað Svanhvíti Jakobsdóttur forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til næstu fimm ára. Fjórtán sóttu um forstjórastöðuna. Sérstök nefnd fór yfir og mat umsækjendur. Þrír voru taldir hæfastir. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára. Um laun og starfskjör fer samkvæmt ákvörðun kjararáðs, sbr. lög nr. 47/2006 um kjararáð.

Meginhlutverk forstjóra er að tryggja að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins veiti eins góða heilbrigðisþjónustu og framast er unnt. Forstjóri ber ábyrgð á að heilsugæslan starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf.

Svanhvít Jakobsdóttir  hefur verið settur forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í rúmlega ár, áður var hún sviðstjóri fjármála- og rekstrarsviðs heilbrigðisráðuneytisins og skrifstofustjóri á fjármálaskrifstofu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins frá 1993 til 2007.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum