Hoppa yfir valmynd

Frétt

26. maí 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Norðurlönd brautryðjendur í umhverfistækni

Fundur umhverfisráðherra Norðurlanda í Svartsengi 2009
Í Svartsengi

Norðurlöndin munu styrkja stöðu sína sem brautryðjendur á sviði umhverfistækni. Þetta ítrekuðu norrænu umhverfisráðherrarnir á fundi sínum í Svartsengi sem lauk í dag. Íslendingar fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í ár og því var Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra gestgjafi fundarins.

Samkvæmt yfirlýsingu fundarins munu Norðurlöndin styrkja stöðu sína sem brautryðjendur á sviði umhverfistækni. Mikil þörf er á tækni til að draga úr gróðurhúsaáhrifum samhliða alþjóðlegri efnahagsþróun sem miðar að því að draga úr losun koltvísýrings. Umhverfisráðherrarnir sögðu þörf á fjárfestingum sem geta haft langtímaáhrif ef takast ætti að komast úr núverandi efnahagskreppu. Þess vegna eigi að stuðla að grænum hagvexti. Loftslagið mun batna samhliða því að umhverfisvæn verkefni skapa bæði hagvöxt og störf.

Norðurlönd eru brautryðjendur á mörgum sviðum. Meira en 60 prósent af þeirri orku sem Norðurlandabúar nýta er framleidd úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Enn eru þó ónýtt tækifæri í rannsóknum og nýsköpun á sviði umhverfistækni.

Á fundinum fluttur þeir Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar, Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjói Marorku og Andri Ottesen, framkvæmdastjóri Carbon Recycling International, erindi um íslenska nýsköpun og vistvæna tækni.

Frétt á heimasíðu Norðurlandaráðs.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum