Hoppa yfir valmynd

Frétt

29. maí 2009 Innviðaráðuneytið

Flugmálastjórn afhendir starfsleyfi

Kristján L. Möller samgönguráðherra afhenti í dag fyrir hönd Flugmálastjórnar Íslands Flugstoðum ohf. og Keflavíkurflugvelli starfsleyfi fyrir flugleiðsöguþjónustu. Einnig afhenti hann Keflavíkurflugvelli flugvallarskírteini.

Flugmálastjórn afhendir starfsleyfi.
Samgönguráðherra afhenti starfsleyfin fyrir hönd Flugmálastjórnar.

Leyfin eru afhent samkvæmt reglugerð nr. 631/2008 og er innleiðing á reglugerð Evrópusambandsins um sameiginlegar kröfur sem leyfishafar skulu uppfylla til að geta veitt þjónustu á sviði flugleiðsögu. Áður höfðu Veðurstofa Íslands og Flugfjarskipti ehf. fengið afhent starfsleyfi sín.

Reglugerðin felur meðal annars í sér að þeir sem æskja þess að starfrækja flugleiðsöguþjónustu skulu sækja um starfsleyfi til Flugmálastjórnar Íslands. Flugmálastjórn, sem sinnir hlutverki tilnefnds eftirlitsstjórnvalds, skal með vottun tryggja að viðkomandi fyrirtæki uppfylli kröfur reglugerðarinnar.

Mikil vinna liggur að baki starfsleyfum hjá fyrirtækjunum fjórum og ekki síður hjá Flugmálastjórn en undirbúningur hófst í byrjun árs 2007 þegar settur var á stofn starfshópur innan FMS sem hafði það verkefni að greina kröfur og setja verklagsreglur. Náin samvinna hefur verið í umsóknarferlinu á milli Flugmálastjórnar og fyrirtækjanna við að aðlaga handbækur að nýjum kröfum og nýju umhverfi og þar með að sýna fram á að kröfur reglugerðarinnar séu uppfylltar.

Þá er Keflavíkurflugvöllur ohf. fyrsti flugvöllur landsins til að fá flugvallarskírteini afhent til fimm ára og er flugvöllurinn þar með vottaður samkvæmt reglugerð nr. 464/2007 um flugvelli. Vottun flugvalla á Íslandi hófst árið 2004 en þá var reglugerð um flugvelli fyrst gefin út hérlendis. Reglugerðin endurspeglar að mestu leyti viðauka 14, hluta I og II við Chicago sáttmálann hvað varðar flugvelli í flokki I.

    

Flugmálastjórn afhendir starfsleyfi.
Starfsleyfin afhent, frá vinstri: Björn ÓIi Hauksson, forstjóri Keflavíkurflugvallar, Theodór Freyr Hervarsson, framkvæmdastjóri eftirlits- og spásviðs hjá Veðurstofu Íslands, Kristján L. Möller samgönguráðherra, Brandur St. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Flugfjarskipta, Þorgeir Pálsson, forstjóri Flugstoða og Reynir Sigurðsson, framkvæmdastjóri flugleiðsögu- og flugvallasviðs Flugmálastjórnar.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum