Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. júní 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Alþjóðlegi jarðvegsverndardagurinn

eyðimörk
Alþjóðlegi jarðvegsverndardagurinn

Umhverfisráðuneytið og Landgræðsla ríkisins standa fyrir morgunverðarfundi þriðjudaginn 16. júní á Grand Hótel í tilefni af alþjóðlega jarðvegsverndardeginum , sem er 17. Júní. Boðið verður upp á morgunmat frá kl. 8:00 en fundurinn hefst kl. 8:30 og stendur til kl. 10:00.

Dagskrá:

  • Setning: Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri.
  • Ávarp: Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
  • Hlutverk og framkvæmd jarðvegsverndarstefnu Evrópusambandsins. Dr. Luca Montanarella, yfirmaður jarðvegsverndardeildar Institute of Environment and Sustainability í Ispra á Ítalíu. Sú stofnun er hluti af neti rannsóknastofnana Evrópusambandsins.
  • Fósturmold ‐ gildi og verndun moldar. Próf. Ólafur Arnalds, Landbúnaðarháskóla Íslands
  • Umræður.

Hafdís Gísladóttir, aðstoðarmaður umhverfisráðherra, stýrir fundinum.

Vinsamlega tilkynnið þátttöku til Jóns Ragnars Björnssonar á netfangið [email protected], eða í síma 8629953.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum