Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. júní 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfisráðherra mælir fyrir náttúruverndaráætlun 2009-2013

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherr á Alþingi 2009
Á Alþingi

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra mælti fyrir þingsályktunartillögu um náttúruverndaráætlun 2009-2013 á Alþingi í dag. Lagt er til að þrettán svæði verði friðlýst á tímabilinu. Þar á meðal er gert ráð fyrir að friðlandið í Þjórsárverum verði stækkað og friðun þess lokið sem fyrst. Lagt er til að mörk friðlandsins í Þjórsárverum verði færð út þannig að það nái yfir allt votlendi veranna. Þar með myndu bætast við nokkur rústamýrarsvæði sem eru utan friðlandsins og jafnframt yrðu friðlýsingarskilmálar þar styrktir og bann lagt við röskun innan svæðisins.

Umhverfisráðherra lagði áherslu á að við framkvæmd áætlunarinnar yrði haft gott samstarf við landeigendur, sveitarstjórnir og heimamenn.

Markmið náttúruverndaráætlunarinnar er að halda áfram að byggja upp net verndarsvæða til þess að tryggja verndun tegunda, líffræðilegrar fjölbreytni, landslags og náttúru.

Samkvæmt áæltuninni verður eitt svæði friðað vegna jarðfræði, en það er Langisjór og nágrenni hans. Svæðið verður hluti af Vatnajökulsþjóðgarði.

Í áætluninni er lögð áhersla á friðun svæða sem hafa að geyma sjaldgæfar plöntutegundir og tegundir í hættu. Lagt er til að 160 tegundir mosa, fléttna og háplantna verði friðlýstar, en það er mesta friðun tegunda sem ráðist hefur verið í hér á landi. Tegundir plantna hafa ekki verið friðlýstar síðan 1978.

Lagt er til að þrjár tegundir hryggleysingja verði friðaðar, en það yrði í fyrsta sinn sem dýrategundir yrðu friðaðar samkvæmt lögum um náttúruvernd. Nú eru tegundir fugla og spendýra friðaðar allt árið eða hluta af árinu með lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Í tillögunni að náttúruverndaráætlun 2009 – 2013 er lagt til að friðlýsing nái til eftirfarandi þrettán svæða:

Jarðfræðisvæði:

a) Langisjór og nágrenni. Langir móbergshryggir úr basalti, myndaðir við sprungugos undir jökli, einkenna svæðið. Eldgjársprungan liggur um svæðið austanvert og er lengsta gígaröð sem gosið hefur á landinu á sögulegum tíma. Langisjór og umhverfi hans er þekkt fyrir náttúrufegurð þar sem dökkbrúnt móbergið ásamt svörtum vikrinum frá Veiðivatnagosinu 1477 kallast á við tært fjallavatnið og mosagróður í fjallahlíðum. Á svæðinu er einstakt samspil jarðelds og jökla við mótun landsins.

Vistgerðir:

a) Orravatnsrústir norðan Hofsjökuls. Þar er að finna sérstæðasta freðmýrasvæði landsins.

b) Stækkun friðlands Þjórsárvera og styrking á friðlýsingarákvæðum Guðlaugstungna. Til að vernda rústamýravist.

c) Stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs með friðun svæða í Skaftártungum og á Síðuafrétti. Mikið er um breiskjuhraunavist í þeim hluta þjóðgarðsins sem tilheyrði áður friðlandi umhverfis Lakagíga.

Plöntusvæði:

a) Snæfjallaströnd – Kaldalón. Mikilvægt svæði fyrir sjaldgæfar háplöntur, m.a. dílaburkna, stóraburkna, fjöllaufung, þúsundblaðarós, fjallabláklukku, skollaber og sandmunablóm.

b) Eyjólfsstaðaskógur. Þar finnst fjöldi sjaldgæfra fléttna sem ásætur á birki.

c) Egilsstaðaskógur og Egilsstaðaklettar. Merkileg svæði fyrir fjölda sjaldgæfra fléttna sem þrífast sem ásætur á birki þessara svæða.

d) Skóglendi við Hoffellsjökul. Einstakt gróðurfar og sjaldgæfar plöntur.

e) Steinadalur í Suðursveit. Vegna gróðurfars og sjaldgæfra plantna.

f) Gerpissvæðið. Á svæðinu er sérstætt gróðurfar, en á svæðinu finnast allnokkrar sjaldgæfar háplöntutegundir eins og fjöllaufungur, lensutungljurt, sóldögg, álftalaukur, mýraberjalyng, bjöllulilja, sifjarsóley o.fl. Svæðið er vinsælt til útivistar.

Verndarsvæði fyrir smádýr/hryggleysingja:

a) Undirhlíðar í Nesjum. Búsvæði tröllasmiðs.

b) Hvannstóð undir Reynisfjalli. Búsvæði brekkubobba.

c) Tjarnasvæði á Innrahálsi í Berufirði. Búsvæði tjarnarklukku.

Þingsályktunartillaga um náttúruverndaráætlun 2009-2013 á heimasíðu Alþingis.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum