Hoppa yfir valmynd

Frétt

10. júní 2009 Heilbrigðisráðuneytið

Þriðja inflúensutilfellið greint

Þriðja tilfelli inflúensu A (H1N1) greindist á Íslandi í gærkvöld. Þar er um að ræða eiginkonu karlmannsins sem greindist með veikina í fyrradag. Fullvíst er talið að hjónin hafi smitast í Bandaríkjunum. Þaðan komu þau til Íslands fyrir réttri viku, miðvikudaginn 3. júní. Þau veiktust bæði, en ekki alvarlega. Sameiginlegt er með öllum þremur inflúensutilfellunum, sem greinst hafa hérlendis, að viðkomandi komu hingað frá Bandaríkjunum.

Enn sem komið er hefur ekki greinst smit milli manna á Íslandi.

Búast má við að inflúensan breiðist út hér á landi á næstu vikum og mánuðum en þar sem sýkingin er ekki alvarlegri en hefðbundin árleg inflúensa er viðbúnaður hérlendis óbreyttur.

Mikilvægt er að fylgjast vel með útbreiðslu inflúensunnar hér á landi því öll vitneskja um sjúkdóminn er nauðsynleg þegar metið er til hvaða viðbragða skuli grípa í framtíðinni. Læknar eru því áfram hvattir til að senda sýni til greiningar frá sjúklingum sem taldir eru vera með inflúensu.

Áfram er unnið að samhæfingu viðbragðsaðila þar að lútandi, meðal annars með svæðisáætlunum sem ræddar eru þessa dagana um allt land á fundum á vegum sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Slíkur fundur var til dæmis á dagskrá í Reykjavík núna fyrir hádegið í dag, miðvikudag.

  • Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins greinir frá því í dag að alls séu 26.744 tilfelli inflúensu A (H1N1) staðfest í heiminum, þar af 1.348 í ríkjum ESB og EFTA.
  • Inflúensa A (H1N1) hefur dregið 140 manns til dauða, þar af 106 í Mexíkó, 27 í Bandaríkjunum og 4 í Kanada.

Tilkynningar um viðbúnað vegna inflúensu A (H1N1) eru birtar á influensa.is, bæði á íslensku og ensku, og á almannavarnir.is. Þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar um inflúensuna og ráðstafanir í því sambandi á landlaeknir.is, og á heimasíðum Sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins - ECDC, http://www.ecdc.europa.eu/ og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - WHO, http://www.who.int/en/.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum